fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Smári McCarthy: Ástand Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar er hreinlega hættulegt

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 7. maí 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smári McCarthy þingmaður Pírata

Reykjanes sendi þingmönnum þrjár spurningar og bað þá um svör.

1.Fyrir liggur að ekkert auka fjármagn verður sett í lagfæringar á Reykjanesbraut eða Grindavíkurveg á þessu ári.Fleiri vegi á Suðurnesjum þarfnast mikilla endurbóta. Er hægt að sætta sig við að þessi fjölfarnasti ferðammastaður landsins þurfi áfram að bíða?

Samgöngumál eru í uppnámi víðast á landinu, ekki síst á fjölförnum stöðum. Samgönguráðherra virðist hafa lítinn áhuga á lausnum. Ástand Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar er hreinlega hættulegt.

2. Misserum saman hefur verið rætt um að innheimta gjald af þeim mikla fjölda erlendra ferðamanna sem kemur til landsins til að standa undir hluta kostnaðar við uppbyggingu vegakerfis og aðstöðu á fjölförnum ferðamannastöðum. Rætt hefur verið um ferðamannapassa, vegatolla, hækkun á gistináttaskatti, komugjöld o.fl. en ekkert gerist.

Hvaða leið vilt þú fara?

Ég myndi vilja sjá gistináttaskatt sem hlutfall af gistiverði frekar en fasta krónutölu, en að það fé færi til sveitarfélaga. Væg komugjöld á flug til landsins myndu geta skilað í kringum 2 mia kr. á ári, sem mætti verja til vegagerðar. Hærri komugjöld gætu verið skaðleg fyrir eftirspurn. Á árinu 2017 verður varið tæplega 25 milljörðum króna í vegagerð, þannig að þetta yrði kærkomin bót, en hvergi nærri nóg. Við þurfum að finna meira fjármagn til að klára nokkur forgangsverkefni, þar sem vegir eru hættulegir – kannski samgönguráðherra geti leitað að peningum á þeim stað þar sem aukafjárveitingin fyrir Vaðlaheiðargöng fanst.

3. Eldri borgarar eru hvattir til þátttöku í atvinnulífinu t.d. með því að taka að sér hlutastarf. Á sama tíma eru frítekjumörk sett í 25. Þúsund krónur á mánuði. Eftir það verður 45% skerðing á greiðslum frá TR, þannig að viðkomandi heldur eftir skatta aðeins um 30% launanna.

Er þetta ásættanlegt?

Frítekjumörkin eru augljóslega of lág, og skerðingarnar of miklar. Þátttaka eldri borgara í atvinnulífinu er af hinu góða, og verður mikilvægari eftir því sem þjóðin eldist. Það verður að tryggja bæði viðunandi lífskjör fyrir alla og haga hvötum þannig að við letjum ekki fólk frá þátttöku.

Greinin birtist fyrst í Reykjanesi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð