Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar hefur boðað Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra á fund nefndarinnar vegna frétta um sameiningu Fjölbrautarskólans í Ármúla og Tækniskólans. Í fréttatilkynningu frá þingflokki Vinstri grænna kemur fram að fulltrúar Vinstri grænna, Pírata og Framsóknar í nefndinni hafi farið fram á að fundurinn yrði opinn.
RÚV greindi frá því í morgun að skólarnir tveir verði sameinaðir. Vildu skólameistarar skólanna tveggja ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað, vísuðu þeir á menntamálaráðuneytið. Sagði Kristján Þór að engin ákvörðun hefði verið tekin og að ekkert hefði verið tilkynnt. Það væri þó unnið að því að finna leiðir til að bregðast við fækkun nemenda á framhaldsskólastigi.