Helgi Seljan, Ingólfur Bjarni Sigfússon og Sigríður Halldórsdóttir verða umsjónarmenn nýs fréttaskýringaþáttar á RÚV undir ritstjórn Þóru Arnórsdóttur. Þátturinn fer í loftið næsta haust, hefur hann ekki fengið nafn en efnt verður til hugmyndasamkeppni innan RÚV um nafnið.
Kastljós mun taka breytingum þegar hann fer aftur í loftið í ágúst. Verður Kastljós viðtalsþáttur í beinni útsendingu í umsjá Baldvins Þórs Bergssonar og Helgu Arnardóttur. Þátturinn verður styttur en fram kemur í fréttatilkynningu að menningarumfjöllunin verði áfram á sínum stað.
Nýji þátturinn verður með innlendar og erlendar fréttaskýringar, prófílar og rannsóknarblaðamennsku.