fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Hópur lögreglumanna og saksóknara þjálfaðir gegn hatursglæpum

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 3. maí 2017 16:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV

Hópur lögreglumanna og ákærenda hér á landi fékk í síðustu viku þjálfun í að rannsaka hatursglæpi og sækja þá til saka sem grunaðir eru um slík brot. Á vef dómsmálaráðuneytisins kemur fram að þjálfunin hafi einnig snúist um að miðla þeirri þekkingu til annarra sem sinna löggæslu og fara með ákæruvald.

Námskeiðið fyrir lögreglumenn var haldið í samvinnu við mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar í húsnæði ríkislögreglustjóra og sóttu það níu manns en sex sóttu námskeið fyrir saksóknara sem haldið var í samvinnu við ríkissaksóknara.

Leiðbeinendur á námskeiðunum voru frá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ODIHR, í samræmi við samkomulag sem ODIHR gerði við íslensk stjórnvöld og skrifað var undir í desember síðastliðnum. Stefnt er að því að þessi fræðsla verði fastur liður í menntun og símenntun lögreglumanna og ákærenda.

Alþjóðlegar stofnanir hafa skilgreint hatursglæpi sem brot á almennum hegningarlögum þar sem ásetningur brotsins ræðst að öllu leyti eða hluta til af fordómum gerandans gagnvart brotaþolanum vegna þjóðernis, trúarbragða, kynþáttar, litarháttar, kynhneigðar eða kynvitundar. Þessi tegund mála hefur verið mjög umdeild hér á landi en nýverið var Pétur Gunnlaugsson útvarpsmaður á Útvarpi Sögu sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af öllum kröfum ákæruvaldins þar sem hann var sakaður um að hafa staðið fyrir hatursáróðri á stöðinni.

Þátttakendur á námskeiðunum lýstu ánægju með hvernig til tókst en á þeim var m.a. fjallað um skilgreiningu á hatursglæpum og áskoranir sem mæta rannsakendum og ákærendum í þessum málum. Þá unnu þátttakendur hagnýt verkefni og æfðu sig í að koma þekkingu sinni á framfæri.

Námsefni um hatursglæpi fyrir lögreglumenn og ákærendur hefur verið þýtt á íslensku og vinnur samráðshópur að þessu verkefni. Í honum eiga sæti fulltrúar dómsmálaráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins, ríkissaksóknara, mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar og Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð