Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir Heiðu Kristínu Helgadóttur hafa opinberað litlar áhyggjur af húsnæðisskorti í Reykjavík og segir hana ekki skilja það að lausn vandans felist í nýtingu lands borgarinnar í Úlfarsárdalnum og í Geldinganesi til að byggja húsnæði á viðráðanlegu verði.
Heiða Kristín, sem var áður aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra og stjórnarformaður Bjartrar framtíðar en gekk til liðs við Viðreisn fyrir síðustu kosingar, lét eftirfarandi orð falla í Silfrinu í gær:
Við getum ekkert verið að væla yfir húsnæðisskorti þegar við ætlum ekki að taka á því að það er risastórt byggingarland í miðju borgarinnar sem við getum ekki komist yfir að ákveða hvað við ætlum að gera við. Vatnsmýrin stendur þarna opin en við hringsnúumst um okkur sjálf við að taka ákvörðun um það sem er ekki flókið.
Sagði Heiða Kristín jafnframt að verið væri að gera of mikið úr vandanum, hér áður fyrr hafi fólk þurft að búa í bröggum. Það væru mistök að brjóta upp það sem vel sé verið að gera í skipulagsmálum borgarinnar:
Ég vil ekki gera neitt sem verður til þess að Kjartan Magnússon eða Marta Guðjóns komist til valda með sín mislægu gatnamót og úthverfabyggð.
Segir Heiðu fasta í trúarbrögðum
Marta segir að með þessum orðum hafi Heiða farið í manninn en ekki boltann:
„Heiða Kristín Helgadóttir fv. stjórnarformaður Bjartrar framtíðar opinberaði það í beinni útsendingu í Silfri Egils að hún hefði litlar áhyggjur af húsnæðisskortinum í borginni. Hún skilur ekki að lausn vandans felst í því að borgin nýti sitt eigið land eins og í Úlfarsárdalnum og í Geldinganesi þar sem hægt er að bjóða upp á lóðir til uppbyggingar á viðráðanlegu verði,“
segir Marta á Fésbókarsíðu sinni. Hún bætir við:
Heiða Kristín er svo föst í trúarbrögðum sínum á þéttingu byggðar að hún sér heldur ekki þá augljósu staðreynd að þar sem verið er að þétta byggð eru lóðir seldar á hæsta markaðsverði sem skilar sér í íbúðarverði sem er stjarnfræðilega hátt! Og ekki boðlegt íbúum Reykjavíkurborgar!
Gleymir að kjósendur hafa lokaorðið
Segir Marta að þéttingarstefna meirihlutans hafi snúist upp í andhverfu sína og leitt til dreifingar byggðar. Þetta sé staðfest af tölum Hagstofunnar sem sýni að sjö af hverjum tíu nýjum íbúum sjái sig knúna til að flytja í önnur sveitarfélög en Reykjavík. Meirihlutinn í borginni sé ábyrgur fyrir ástandinu sem ríki í húsnæðismálum í Reykjavík með langvarandi lóðaskortsstefnu sinni:
Heiða Kristín situr einnig fast við sinn keip þegar kemur að samgöngumálum en þar vill hún viðhalda stefnu meirihlutans um að neita að leysa þann alvarlega umferðarvanda sem er í borginni. Hún vill greinilega ekki horfast í augu við það að góðar og greiðar samgöngur auka umferðaröryggi og draga úr mengun. Henni virðist vera meinilla við úthverfi borgarinnar því þar vill hún alls ekki að verði byggt og að fólkið sem þar býr fái að búa við greiðar samgöngur sem bæta umferðaröryggi og stytta ferðatíma,
segir Marta. Guðfinna J. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina tók undir með Mörtu og sagði það hafa verið vandræðalega erfitt að hlusta á Heiðu Kristínu í Silfrinu. Marta segir það teljast Heiðu Kristínu til tekna að hún hafi áhyggjur af því að borgarbúar myndu frekar vilja taka undir skoðanir Sjálfstæðismanna í skipulagsmálum:
Hún sá sig knúna til að fara í manninn en ekki boltann og nefndi að hún vildi ekki að Kjartan Magnússon og undirrituð kæmust til ,,valda með sína úthverfastefnu.” Þetta finnst mér ómálefnalegur málflutningur einkum og sér í lagi í ljósi þess að Heiða Kristín hefur boðað það að láta málefnin ráða en ekki persónur. Með öðrum orðum Heiða Kristín mun standa með Degi B og co. í því að vilja áfram bara vinna fyrir sum hverfi en alls ekki úthverfin. Heiða Kristín virðist gleyma því að það eru kjósendur í þessari borg sem hafa síðasta orðið.