fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Guðrún Erlingsdóttir: „Það eru allir áhugaverðir og faldir gimsteinar út um allt”

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 27. maí 2017 12:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Erlingsdóttir var um árabil áberandi í sunnlenskum stjórnmálum. Hún tók sæti á Alþingi fyrir Samfylkinguna, sat í bæjarstjórn Vestmannayja fyrir V-listann og starfaði fyrir Verslunarmannafélags Suðurlands. Eftir viðburðaríkan ferlil og langa búsetu í Eyjum undu þau Gylfi Sigurðsson, eiginmaður hennar, kvæði sínu í kross og fluttu til Reykjavíkur. Nýverið hóf hún störf á Morgunblaðinu og meistaranám í blaða- og fréttamennsku. Ritstjóri Suðra ræddi við Guðrúnu um ferilinn og tækifærin framundan.

Nú varst þú mjög áberandi í bæði lands- og sveitarstjórnarmálum á Suðurlandi, hvað ertu að fást við nú? Hvað lærðir þú í Háskólanum?

Árið 2013 flutti ég frá Vestmannaeyjum eftir 50 ára búsetu og settist á skólabekk. Fór í Háskóla Íslands. Ég útskrifaðist með BA gráðu í norsku með atvinnulífsfræði vorið 2016. Ég útskrifaðist einnig úr þriggja ára heilsumeistaranámi árið 2014. Nú stunda ég meistaranám í blaða-og fréttamennsku við HÍ.

Hvað kom til að þú valdir fjölmiðlana, hefur það lengi blundað í þér?

Já og nei. Ég starfaði árið 1981 á hjá Eyjaprent. Var ráðin til aðstoðar í prentsmiðjunni en fékk að skrifa fréttir m.a. um íþróttir kvenna. Á þeim tíma var ekki mikið skrifað um þau mál.  Ég hef alltaf haft gaman af því að skrifa og semja.  Þegar ég kláraði BA námið í fyrra, var byrjuð að sækja um störf löngu fyrr. Það er ekki með heiglum hent að fá góða vinnu komin yfir fimmtugt.  Ég var búin að sækja um vinnu á yfir 50 stöðum með engum árangri. Ég var því með það plan B, að fara í mastersnám á meðan ég leitaði að vinnu. Mér  hugnaðist best blaða- og fréttamennsku af því masternámi sem ég skoðaði. Það val er að skila sér í dag. Námið er lifandi, praktískt og krefjandi. Það er krefjandi að læra á mismunandi tækni. Við lærum ekki einungis að skrifa fréttir. Við lærum að starfa á ritstjórn, skrifa fréttir og pistla, búa til úrvarpsþætti frá a-ö frá hugmynd til framkvæmdar. Við þurfum sjálf að taka upp fréttir og þætti, bæði fyrir útvarp og sjónvarp, klippa, bæta við músík og talmáli og setja á vefinn. Það er ekki í boði að vera hræddur við tæknina í náminu og ég hef í raun verið í stöðugri uppfærslu og tölvukennslu undanfarin fjögur ár.

Myndin er tekin í lok tónleika minna í Salnum í Kópavogi 11, júní 2016, með Kór Ástjarnarkirkju. Hljómsveitina skipuðu Matthías V. Baldursson, Píanó, kórstjórn og útsetningar, Þorbergur Skagfjörð Ólafsson slagverk, Þórir Rúnar Geirsson Bassi og Friðrik Karlsson gítar.

Nú varstu að fá starf á Morgunblaðinu, hvernig leggst það í þig?

Það leggst vel í mig. Ég byrjaði á Morgunblaðinu í apríl. Fór í fjögurra vikna starfsnám á vegum skólans. Fékk í kjölfarið ráðningu á fréttadeildinni í sumar. Það var sérlega góð tilfinning að komast inn á vinnumarkaðinn aftur eftir fjögurra ára hlé. Ég er búin að prófa að vinna á fréttadeildinni, á mbl.is og á Daglega lífinu. Þetta er allt jafn skemmtilegt og gott að finna hvernig reynsla mín og menntun nýtast í starfinu. Mér finnst reyndast skemmtilegast að taka viðtöl og hef verið að taka opnuviðtöl fyrir Eyjafréttir undanfarnar vikur og það gefur mikið. Það hafa allir einhverja sögu að segja. Það eru allir áhugaverðir og faldir gimsteinar út um allar trissur.

Hvað þykir þér um stöðu fjölmiðlana, eiga þeir undir högg að sækja vegna samfélagsmiðla, eða finna þér sér farveg og lifa breytingarnar af? Stendur okkur ógn af þróuninni, td vegna falskra frétta og skorts á ritstýringu á samfélagsmiðlum?

Hinir hefðbundu fjölmiðlar eiga undir högg að sækja en þeir hafa margir hverjir brugðist við með því að nýta sér samfélagssmiðlanna. Morgunblaðið sem dæmi gefur út dagblað og heldur úti vefmiðli mbl.is, innan hans er mbl-sjónvarp. RÚV heldur úti einni sjónvarpsstöð, vefmiðli og tveimur útvarpsstöðvum og er tilbúin með þá þriðju fyrir unga fólkið ef pólístískt samþykki fæst fyrir nýrri stöð og svona mætti áfram telja. Of mikið framboð á samfélagsmiðlum, skortur á ritstýringu og falskar fréttir gætu orðið til þess að fólk leyti aftur til fjölmiðla sem þeir treysta. Þetta verður kannski eins og með vínilplötunar sem flestir hentu frá sér fyrir geisladiskanna. Fleiri menntaðir blaða- og fréttamenn og fjölmiðla- og boðskiptafræðingar ættu að koma með meiri fagmennsku á fjölmiðlanna. Ef fjölmiðlarnir eru á tánum og fylgja breyttu umhverfi án þess að slá af kröfum um fagmennsku þá lifa þeir af. Að því gefnu að eigendur þeirra hafi skilning á því að fagleg fréttamennska þarfnast tíma og fjármagns.

En að stjórnmálunum, það er snúin staða hjá okkar gamla flokki, hvernig metur þú framtið jafnaðarflokkanna, þurfa þeir að sameinast, eða nær Samfylkingin vopnum sínum?

Mín sannfæring er sú að jafnaðarmennska er nauðsynleg, sama hvað flokkurinn heitir. Ójöfnuður á Íslandi stafar að mínu mati af því að við höfum fjarlægst norræna velferðarkerfið og horfum meira til vesturs. Í lýðræðisríkjum þurfa öll sjónarmið að hafa málsvara alveg frá hægri og alla leið til vinstri. Mér hugnast vel leið Norðmanna. Þeir kjósa á fjögurra ára fresti og flokkarnir verða að vinna saman. Það er ekkert sem heitir að rjúfa þing og kjósa upp á nýtt þó svo að það komi brestir í samstarf eða stjórnarkreppa. Það er ekki kosið aftur fyrr en að fjórum árum liðnum. Þetta þýðir að meirihlutavald virkar ekki með sama hætti og hér á landi. Þingfulltrúar verða að koma sér saman um hlutina og taka tillit til fleiri en eigin flokksmanna.

Samfylkingin Hvað þarf að koma til að hún geri það, og af hverju fór svo illa, klofningur og fylgishrun?

Það er ekkert eitt svar við klofningi og fylgishruni Samfylkingarinnar. Breytt umhverfi í stjórnmálum og upplausn fjórflokkanna er klassískt svar. Seta í ríkisstjórn rétt fyrir hrun og á erfiðum tímum eftir hrunið hefur efalaust haft sitt að segja. Það má líka velta fyrir upp hvort það hafi ekki alltaf verið fylkingar í Samfylkingunni sem kom í veg fyrir  að sameining vinstri manna varð varanleg. Kannski er bilið milli jafnaðarmanna frá hægri sinnuðum til vinstri sinnaðara einfaldlega of mikð. Bræðra- og systravíg í prófkjörum skemma fyrir samstöðu og valda því að gott fólk sem vill ekki taka þátt í þeim leik hrekkst úr pólitík.

 

Ertu alfarið hætt afskiptum af stjórnmálum?

Ég var hætt í bæjarpólitíkinni nokkru áður en ég flutti frá Eyjum. Eftir að ég hætti í að starfa í verkalýðshreyfingunni og pólitíkinni dró ég markvisst úr öllum nefndar- og félagsstörfum. Ég hætti síðustu nefndinni um mitt ár 2015. Það er hollt að stokka upp lífið og breyta hressilega til. Ég átti svo drauma þegar ég bjó í Eyjum. Það var að fara í staðbundið háskólanám og syngja í Gospelkór. Báðir þeir draumar hafa ræst og meira til. Ég hélt tónleika í fyrrasumar í Salnum í Kópavogi þar sem ég söng með kórnum mínum fimmtán lög og texta eftir sjálfa mig. Ég hef líka verið að þýða og setja texta við erlend lög. Ég hef ennþá mínar skoðanir og hugsjónir en mun að líkindum ekki taka þátt í pólitísku starfi á meðan ég starfa sem blaðamaður. Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég átti ekki von á því að fjórum árum eftir að ég flutti frá Eyjum væri ég orðin blaðamaður. En lífið kemur skemmtilega á óvart ef maður leyfir því að gera það.

Ertu búin að setja kúrsinn á næsta verkefni, eða æltar þú að sjá hvað setur á Mogganum?

Ég ætla að klára mastersnámið nema mér bjóðist starf sem er þess virði að hætta í námi fyrir. Ég tók hressilega á þessa önnina og kláraði 40 einingar á önnina. Ég á því bara 20 einingar eftir, auk 30 eininga ritgerðar. Það er allt of lítið eftir til þess að klára ekki mastersgráðuna. Ég vonast til þess að fá vinnu á Morgunblaðinu í vetur með skóla. Morgunblaðið er skemmtilegur vinnustaður og orðin hálfgerð Vestmannaeyjanýlenda. Þeir eru á annan tuginn starfsmennir  frá Eyjum eða tengjast þeim á einhvern hátt.

Guðrún bað í lokin fyrir kærar kveðjur á Suðurlandið og sérstakar saknaðarkveðjur til Eyja.

Greinin birtist fyrst í Suðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra