Stjórn læknaráðs Landspítalans tekur undir með sjálfstætt starfandi sérfræðilækna í gagnrýni þeirra á Birgi Jakobsson landlækni. Segir í yfirlýsingu læknaráðs að ummæli landlæknis fyrr í vikunni um að sérfræðilæknar Landspítalans Landspítalans sinni ekki veikustu sjúklingum spítalans séu röng og að landlæknir hafi farið framúr sér:
Stjórn læknaráðs mótmælir harðlega fullyrðingum landlæknis um að sérfræðilæknar Landspítalans sinni ekki veikustu sjúklingum spítalans og láti það eftir óreyndum unglæknum, kandídötum og hjúkrunarfræðingum. Þeir sem þekkja til starfsemi Landspítalans vita að þetta er ekki rétt og telja verður að hér hafi landlæknir farið fram úr sér í yfirlýsingum,
segir í ályktuninni. Þar segir jafnframt:
„Þjónusta Landspítalans er skipulögð svo að viðeigandi þekking og reynsla sé til staðar á öllum tímum sólarhringsins eins og stjórnendur hans telja þörf á og fjárheimildir leyfa. Á álagstímum er ástandið metið daglega og viðbúnaðarstig og mönnun ákvörðuð í samræmi við það. Vinna sérfræðilækna og annarra starfsmanna er skipulögð af stjórnendum sjúkrahússins með þarfir og öryggi sjúklinga í forgrunni á hverjum tíma.“
Telur stjórn læknaráðsins mikilvægt að talað sé af ábyrgð og að gætt sé að því að skapa ekki ótta:
Sérfræðilæknar stinga ekki af frá starfsskyldum sínum eða skilja sjúklinga eftir í reiðileysi, eins og skilja má af viðtalinu við landlækni. Stjórn læknaráðs telur að sérfræðilæknar Landspítala, hvort sem þeir eru í hluta- eða fullu starfi, sinni starfi sínu af fagmennsku, samviskusemi og oft umfram starfsskyldur. Þeir eru ekki ógn við öryggi sjúklinga né sú starfsemi og þjónusta sem þeir eða aðrir sérfræðingar veita á læknastofum. Stjórn læknaráðs telur mikilvægt að þeir sem fjalla um heilbrigðismál tali af ábyrgð og þess sé gætt að skapa hvorki ótta né óöryggi meðal sjúklinga í yfirlýsingum.