fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Eyjan

Halldór hjá SA gagnrýnir kjararáð harðlega: „Leikhús fáránleikans er í beinni útsendingu“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 23. febrúar 2017 16:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

„Það blasir því við að ákvarðanir kjararáðs eru úr öllum takti við almenna launaþróun, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma. Umbætur á vinnumarkaði eru stærsta verkefni stjórnvalda á kjörtímabilinu. Til viðbótar við kjararáð eru ríki og sveitarfélög orðin leiðandi í launaþróun í landinu. Umbætur á vinnumarkaði eru í uppnámi og kjaradeilur munu raska efnahagslegu jafnvægi og koma í veg fyrir mikilvæga uppbyggingu á mörgum sviðum. Ábyrgðin er alveg skýr: Hún er ríkis og sveitarfélaga.“

Þetta segir Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í grein í Viðskiptablaðinu í dag. Hann segir ASÍ og SA á einu máli og ábyrgð Alþingis mikil þar sem það sé staðreynd að hið opinbera sé leiðandi í launaþróun hér á landi. Halldór setur sig í spor óþekkta embættismannsins í verki Magnúsar Tómassonar við Reykjavíkurtjörn, óþekkti embættismaðurinn átti sig á því að úrskurður kjararáðs um laun æðstu embættismanna ríkisins valdi því að landsmenn allir vildu gjarnan fá sömu launhækkanir:

Embættismaðurinn veit að það er ekki skattheimta ríkisins sem skapar svigrúm til launahækkana í landinu. Þar ráða aðrir þættir. Verðmætasköpun fyrirtækjanna og aukin framleiðni ræður því hvernig launin þróast. Efnahagsástand, gengi krónunnar, vextir ásamt almennum rekstrarskilyrðum skapa umhverfi sem, þegar allt gengur vel, gerir fyrirtækjunum kleift að sækja fram, stunda vöruþróun, markaðssókn og undirbúa fjárfestingar í nýjungum,

segir Halldór. Í rammasamkomulaginu frá 2015 var ákveðið að samningsbundnar launakostnaðarbreytingar skyldu að hámarki nema 32% frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Gildir það jafnt um kjarasamninga sem höfðu verið gerðir og þá sem koma til endurnýjunar frá undirritun samkomulagsins:

Ekkert af þessu virðist hafa haft áhrif á kjararáð. Það virðist þeirrar skoðunar að opinberir starfsmenn geti leitt launaþróunina. Það er fráleit forsenda. Ráðið gefur lítið fyrir ríkjandi launastefnu þrátt fyrir að eiga samkvæmt lögum að taka tillit til almennrar þróunar kjaramála. Í stað þess hefur ráðið ákveðið 75% hækkun á þingfararkaupi frá nóvember 2013 og 88% sé almennum launahækkunum á árunum 2017 og 2018 bætt við. Leikhús fáránleikans er í beinni útsendingu.

Líkt og Eyjan greindi frá í morgun funduðu fulltrúar SA og ASÍ fyrr í vikunni um hvort forsendur kjarasamninganna haldi.

Umbætur á vinnumarkaði í uppnámi

Halldór segir að það blasi við að ákvörðun kjararáðs sé úr öllum takti við almenna launaþróun, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma. Umbætur á vinnumarkaði, sem sé stærsta verkefni stjórnvalda á kjörtímabilinu, eru í uppnámi og kjaradeilur munu raska efnahagslegu jafnvægi og koma í veg fyrir mikilvæga uppbyggingu á mörgum sviðum. Segir Halldór að það sé þyngra en tárum taki sé litið yfir hið efnahagslega svið. Kaupmáttur launa hefur aukist hratt. Skuldir heimila, fyrirtækja og hins opinbera hafa lækkað mikið. Sterkur hagvöxtur og góðar ytri aðstæður hafa haldið verðbólgu í skefjum. En til þess að árangurinn verði varanlegur segir Hörður að þá þurfi launahækkanir að vera í samræmi við getu hagkerfisins til að standa undir þeim:

Ríki og sveitarfélög þurfa að taka til í sínum ranni. En nú er engu líkara en að óþekkti embættismaðurinn sé að kikna undan ábyrgðinni. Þótt hann horfi hvorki til stjórnarráðsins né Alþingishússins leitar hugur hans þangað. Þar er unnt að bregðast við úrskurði kjararáðs, þar er unnt að leiðrétta vitleysuna, þar er unnt að tryggja að ekki verði upplausn á vinnumarkaði. Þar sitja ábyrgir fulltrúar almennings sem hljóta að taka heildarhagsmuni fram yfir sína eigin. Annars rísa þeir ekki undir þeirri ábyrgð sem þeim var falin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?