fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Verið á Sauðárkróki: Auknar rannsóknir á heilsubætandi áhrif fiskprótína

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 21. júní 2017 17:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Iceprotein ehf. og Protis ehf.

Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Iceprotein ehf. og Protis ehf. í Verinu á Sauðárkróki, hlaut hvatningarverðlaun FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri í byrjun þessa árs. Á síðasta ári hlaut Hólmfríður hvatningarverðlaun SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Markmiðið Versins Vísindagarða er að annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu ásamt því að skapa aðstöðu og vettvang til samstarfs milli vísindamanna og fyrirtækja á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Í Verinu koma saman frumkvöðlar og fræðimenn sem leitast við að rannsaka og finna ný tækifæri og koma þeim á framfæri, samfélaginu til hagsældar.

Hólmfríður lauk meistaranámi  frá Justus-Liebig Universität í Giessen í Þýskalandi  og doktorsprófi í lífvísindum og næringarfræði frá Háskóla íslands 2009. Hún er fædd og uppalin í Skagafirði og sneri þangað aftur að námi loknu þar sem hún stýrir nú tveimur frumkvöðla fyrirtækjum; rannsóknarfyrirtækinu Iceprotein og Protis íslensku líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski. Þannig nýtir hún þekkingu sína, reynslu og kraft í að efla orku og lífsþrótt landsmanna. Hólmfríður er sannfærð um að Íslendingar eigi í auknum mæli eftir að nýta hreina og óspillta náttúru landsins til að framleiða matvæli. Íslendingar sitji á miklum verðmætum, og eigi að framleiða miklu meira.
Sett var á markað vörulíina Iceprotein og Protis sem er byggð á áralöngum rannsóknum á heilsubætandi áhrifum fiskprótína. Amínó setti þrjár gerðir fæðubótarefna á markað, Amínó Liði, Amínó Létt og Amínó 100% hreint fiskprótín. Fæðubótarefnin hafa fengið ákaflega jákvæðar undirtektir.
Haft hefur verið samband við framleiðanda varðandi Amínó Liði  og bent á að þeir sem hafi notað þá hafi minni þrota og minni verki í liðum. Amínó Liðir innihalda efni sem bæta heilbrigði liða. Vitneskja um mikilvægi á neyslu prótíns hefur aukist mikið og ánægja með neyslu fiskprótínis, þá sérstaklega vegna þess að það er virðist auka úthald yfir daginn. Dr. Hólmfríður segist sannfærð um að fiskprótín sé prótín framtíðarinnar, hreinleiki og uppruni fæðunnar öðlast stöðugt meiri skilning og fylgni, enda er þorskurinn sem prótínið er unnið úr 100% náttúrulegur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi