fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Kolbeinn: „Enn eitt pólitíska trixið“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 21. júní 2017 15:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna.

„Sjálfstæðisflokknum í borgarstjórn Reykjavíkur er að takast, með dyggum stuðningi Framsóknar- og flugvallavina, að gera fjölgun borgarfulltrúa að flokkspólitísku máli. Það er afskaplega lítilmannlegt, þykir mér. Bókanir um að fjölgun borgarfulltrúa séu dæmi aðdáun vinstri manna á „útþenslu kerfisins“ eru svo hallærislega gamaldsags að þær ýta enn frekar undir þá tilfinningu mína að minnihlutinn í Reykjavík sé uppi á vitlausri öld.“

Þetta segir Kolbeinn Óttarson Proppé þingmaður Vinstri grænna í pistli sem hann birtir á Fésbók í dag, fer hann yfir núverandi sveitarstjórnarlög sem kveða á um að þar sem íbúar séu 100 þúsund eða fleiri skuli vera 23 til 31 aðalmenn. Jón Gunnarsson samgönguráðherra hefur boðað að frumvarp þar sem fjöldi borgarfulltrúa sé settur í hendur borgarinnar verði lagt fram á ný í haust, en það komst ekki á dagskrá Alþingis í vor. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins styður ekki fjölgun borgarfulltrúa og telur 15 borgarfulltrúa í fullu starfi duga og vísa til sveitarfélaga á Norðurlöndunum þar sem séu fleiri borgarfulltrúar á hvern íbúa en þeir séu ekki í fullu starfi. Kolbeinn segir þetta ekki rök:

Finnst Sjálfstæðismönnum Reykjavík svo einstök að um hana eigi ekki að gilda sömu reglur og önnur sveitarfélög landsins? Nú vill svo til að á þessar reglur hefur reynt og það t.d. í nágrannasveitarfélagi Reykjavíkur. Eftir að Garðabær og Álftanes sameinuðust fór sveitafélagið úr öðrum lið töflunnar hér að ofan og í þann þriðja; íbúar voru eftir sameiningu um 14 þúsund. Og samkvæmt lögum var fulltrúum í sveitarstjórn fjölgað úr sjö í ellefu árið 2014,

segir Kolbeinn og bætir við:

Finnst Sjálfstæðismönnum í Reykjavík það vera dæmi um ást Sjálfstæðismanna í Garðabæ á „útþenslu kerfisins“? Eða er þetta bara enn eitt pólitíska trixið þar sem samkvæmni skiptir engu og ekkert mál er að fórna henni á altari þess að geta skotið á pólitíska andstæðinga sína? Er ekki bara hægt að vera samkvæmur sjálfum sér í pólitík? Það má vel vera að gild rök séu fyrir því að fjölga ekki borgarfulltrúum, en þarf það ekki að skoðast í samhengi við þessa töflu um fjölda sveitarstjórnarfulltrúa miðað við fjölda íbúa? Og færa einhver rök fyrir því að annað gildi um Reykjavík en t.d. Garðabæ?

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi. Mynd/DV

Líf tekur undir með Guðfinnu

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina segir engan vilja gera fjölda borgarfulltrúa að flokkspólitísku máli í Reykjavík, málið eigi að vera í höndum þingmanna en ekki borgarfulltrúa:

Ég tel heppilegra að Alþingi ákveði fjölda borgarfulltrúa í stað þess að borgarfulltrúar fari í einhvern vinsældarleik fyrir næstu borgarstjórnarkosningar sem mun ganga út á það að þeir sem vilja fjölga borgarfulltrúum vilji auka kostnað borgarinnar en hinir ekki, þó svo að útreikningar hafa sýnt að fjölgun borgarfulltrúa hafi í raun ekki í för með sér aukinn kostnað miðað við hvernig fyrirkomulagið er í dag,

segir Guðfinna á Fésbók, undir það tekur Líf Magneudóttir forseti borgarstjórnar og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík. Í greinargerð frumvarpsins að núgildandi lögum kemur fram að nú séu varaborgarfulltrúar í reynd virkir borgarfulltrúar, í dag séu því í reynd um 30 borgarfulltrúar en ekki 15.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi