Einn af hverjum tíu landsmönnum er innflytjandi og fjórðungur landsmanna verða innflytendur eftir hálfa öld. Þetta kemur fram í nýrri mannfjöldaspá Hagstofunnar. Innflytjendum fjölgaði um 4.185 síðan í fyrra og hafa þeir aldrei verið fleiri en nú. Innfæddum Íslendingum fækkaði hins vegar um 146 frá í í fyrra en fleiri fluttu frá Íslandi en fluttu heim.
Alls eru rúmlega 36 þúsund innflytjendur á Íslandi eða 10,6%. Pólverjar eru sem áður langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi, eða 38,3%. Næst fjölmennastir eru Litháar, 5,2% en þar á eftir koma Filippseyingar sem eru 4,5% allra innflytjenda.
Í fyrra fengu 703 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt. Það er nokkru færri en árið á undan, 2015 þegar 801 fékk íslenskan ríkisborgararétt. Flestir nýju ríkisborgaranna voru Pólverjar, 224 manns, þar á eftir komu Filippseyingar, 55.
Búist er við að Íslendingar verði 442 þúsund árið 2065, þá verður samsetning þjóðarinnar nokkuð öðruvísi en nú. Íbúafjölgun verður aðallega tilkomin vegna erlendra innflytjenda og má búast við að þeir verði fjórðungur þjóðarinnar eftir hálfa öld.