fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Íslendingar ætla að hjálpa Grænlendingum

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Sunnudaginn 18. júní 2017 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Suka K. Frederiksen, utanríkisráðherra Grænlands, ræddu fyrr í dag saman í síma vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem skall á byggðinni Nuugaatsiaq í Uummannaq-firðinum í nótt. Utanríkisráðherra vottaði grænlenska ráðherranum samúð sína vegna atburðarins og bauð fram aðstoð og stuðning íslenska ríkisins ef á þyrfti að halda.

Ég tjáði grænlenska utanríkisráðherranum að Ísland styddi Grænland og að við værum reiðubúin til að hjálpa og veita aðstoð eftir þörfum.

Utanríkisráðherra Grænlands, sagði eftirfarandi eftir samtal ráðherranna.

Ég met mikils að starfsbróðir minn, utanríkisráðherra Íslands, skyldi hringja til mín í dag.  Það er mikilsvert að íslenska ríkisstjórnin og íslenska þjóðin hugsi til okkar og bjóði fram aðstoð sína, ef þörf verður fyrir slíkt. Það er gott til þess að vita að við höfum náin tengsl og vinasamband og það sýnir að gott samstarf við nágranna okkar er mikilvægt á erfiðum stundum,

sagði Suka K. Frederiksen.

 Frederiksen upplýsti einnig að á þessari stundu væru engar vísbendingar um að erlendir ríkisborgarar eða ferðamenn væru á þeim svæðum sem verst urðu úti. Tjáði hún utanríkisráðherra Íslands einnig að grænlenska ríkisstjórnin hefði verið upplýst um kveðjur og samhug ríkisstjórnar Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi