Félagið Konur í sjávarútvegi var stofnað á vormánuðum árið 2013. Þá hittust 10 konur í sjávarútvegi saman og mynduðu stjórn. Þær voru allar sammála því að það þarf að vera vettvangur fyrir konur í sjávarútvegi til að búa til tengslanet, vinna saman, kynna sjávarútveginn fyrir konum sem þekkja hann ekki nógu vel og byggja upp jákvætt starf. Tilgangur félagsins er að styrkja og efla konur í sjávarútvegi ásamt því að gera þær sýnilegri innan iðnaðarins sem og utan hans.
Aðalfundur Kvenna í sjávarútvegi var haldinn miðvikudaginn 12.október sl. í húsakynnum Íslenska sjávarklasans á Grandagarði. Fundurinn var vel sóttur og mættu tæplega 30 félagskonur. Í nýkjörinni stjórn eru Nótt Thorberg, Hólmfríður Einarsdóttir, Kristín Helgadóttir, Guðrún Arndís Jónsdóttir, Hrefna Karlsdóttir, J. Snæfríður Einarsdóttir, Tinna Hrund Birgisdóttir og Freyja Önundardóttir sem jafnframt er formaður stjórnarinnar. Freyja rekur útgerðarfyrirtækið Önund ehf. á Raufarhöfn sem gerir út fjölveiðiskipið Þorstein ÞH-115.
Vorferð KIS kvenna var farin dagana 15. – 17. maí sl. til Austfjarðaog heimsótt öflug og flott sjávarútvegsfyrirtæki. Tekið var m.a. á móti konunumí Dahlshúsi á Eskifirði sem er sýningarsalur í gömlu sjóhúsi. Dahlshús ergamalt sjóhús, reist af Jóhanni Dahl, síldarútgerðarmanni, sem kom með húsiðfrá Noregi árið 1880. Útgerðarævintýri Dahls á Eskifirði lauk árið 1883 oghefur Dahlshús gegnt ólíkum hlutverkum síðan þá sem bæði fiskverkunarhús ogsláturhús, svo að dæmi séu nefnd. Húsið hefur verið fært í upprunalegt horf oghafa sýningar eftir landsþekkta listamenn verið settar upp í sýningarsal þesseftir að það opnaði sumarið 2013. Húsið er 90 m2 að grunnfleti. Það er í eiguJens Garðars Helgasonar, formanns bæjarráðs Fjarðabyggðar og formanns SFS,Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Styrkir úrRannsóknarsjóði síldarútvegsins
Rannsóknasjóður síldarútvegsins styrkir á hverju ári fjöldamikilvægra verkefna á sviði náms- og kynningarefnis fyrir sjávarútveginn ensjóðurinn er á forræði Félags síldarútgerða. Verkefni sem hlutu styrk úrsjóðnum í ár voru kynnt á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi:
Vaxandihlutdeild kvenna í stjórnarstörfum í atvinnulífinu
Rakel Sveinsdóttir var kosinn formaður FKA Félagi kvenna íatvinnulífinu, sem haldinn var nýverið. Í FKA eru liðlega eitt þúsund konur íleiðtogastarf á öllum sviðum atvinnulífsins og er um helmingur þeirraforstjórar, framkvæmdasjórar eða eigendur fyrirtækja. FKA hefur beitt sér m.a. fyrir því að konurverði meira áberandi í fjölmiðlum, auka hlutdeild þerra í stjórnarstörfumatvinnufyrirtækja og styðja við verkefnið ,,Jafnvægisvogin,“ en markmið þess erað auka hlutdeild kvenna í ábyrgðar- og stjórnarstörfum fyrirtækja á öllumsviðum.