fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Hæfnirammi innan framleiðslufyrirtækja í Eyjafirði styrktur

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 14. júní 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök iðnaðarins afhentu nýverið tvo styrki úr Framfarasjóði Samtaka iðnaðarins, SI. Annars vegar er um að ræða fimm milljóna króna styrksem fer til verkefnis um þróun rafrænna ferilbóka sem unnið verður af Tækniskólanum í samstarfi við aðra framhaldsskóla, Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins, Menntamálastofnun og Advania. Um er að ræða verkefni sem á að stuðla að miklum framförum í öllu námi sem tengist iðn-, tækni- og verkgreinum. Hins vegar er um að ræða tveggja milljóna króna styrk til að þróa og yfirfæra hæfniramma innan framleiðslufyrirtækja í Eyjafirði sem unnið verður af Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar-SÍMEY, Sæplasti, Ferrozink, Norðlenska og Becromal Ísland.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, segir mikilvægt að hvatt sé til nýjunga sem ýti undir framfarir fyrir iðnaðinn hér á landi.  „Samtök iðnaðarins taka þátt í fjölmörgumverkefnum sem hafa það að markmiði að efla atvinnulífið. Framfarasjóðurinngefur okkur tækifæri til að stuðla að nýjungum svo iðnaðurinn blómstri. Verkefnin sem hlutu styrki að þessu sinni hafa möguleika á að ná breiðri skírskotun og falla því vel að markmiðum sjóðsins.“

Halldór Hauksson, áfangastjóri Tækniskólans, segir styrkinn vera mikilvægan fyrir þróun verk- og starfsnáms á Íslandi. „Það vantar gott rafrænt umhverfi fyrir ferilbók sem heldur utan um námsframvindu nemanda og starfsþjálfun sem hluta af hans námsumhverfi. Í ferilbókina er einnig safnað saman upplýsingum um starfsferil einstaklinga til að byggja á og vinna raunfærnimat. Að námi loknu er gert ráð fyrir að einstaklingur geti notað ferilbókina sem persónulega ferilskrá alla starfs­ævina og skráð þar starfsferil sinn og viðbótarnám.“

Starfsmenn metnir að verðaleikum

Hólmar Svansson, framkvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík, segir styrkinn gera kleift að fá ólík framleiðslufyrirtæki til að samræma hvernig starfsmenn eru metnir að verðleikum. „Ávinningurinn af því að staðla mat á færni starfsmanna auðveldar ekki eingöngu ráðningar í framleiðslufyrirtækjum heldur getur það ýtt undir framgöngu starfsmanna innan einstakra fyrirtækja eðaá milli fyrirtækja. Það eykur möguleika starfsmanna að fá reynslu sína og getu metna sem gefur þá góðar vísbendingar um hversu hæfir þeir eru. Þannig er hægt að skapa ramma fyrir markvissa starfsþróun þeirra sem starfa í framleiðslufyrirtækjum.“

Framfarasjóður SI var stofnaður á síðasta ári í þeim tilgangi að skapa farveg sem styður við og þróar framfaramál tengd iðnaði. Stofn fésjóðsins er 500 milljónir króna. Markmið sjóðsins eru í fyrsta lagi að efla menntun fyrir atvinnulífið með áherslu á iðn-, verk- og tækninám, í öðru lagi er áhersla á nýsköpun sem styrkir framþróun í iðnaði og í þriðja lagi framleiðniaukningu með áherslu á skilvirkt rekstrarumhverfi. Þar eru m.a. þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór í Microbit verkefnið þar sem hátt í 10 þúsund börn í 6. og 7. bekk grunnskóla fengu forritanlegar smátölvur.

Greinin birtist fyrst í Aldan

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð