fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Fiskeldi er framtíðaratvinnugrein á Íslandi

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 14. júní 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar K. Guðfinnsson.

Fiskeldi er hvarvetna í vexti, þar sem því verður komið við vegna náttúrulegra aðstæðna. Þetta á ekki síst við hér við norður Atlantshafið.  Í Noregi er stefnan tekin á fjórföldun eldisins, Færeyingar hafa byggt upp gríðarlega öflugt eldi, í Skotlandi er stefnt á tvöföldun eldisins. Kanadamenn efla sitt eldi, Bandaríkjamenn stefna að aukningu og horfa sérstaklega til sjóeldisins, Evrópusambandið hefur markað stefnu til þess að stuðla að vexti fiskeldis í aðildarlöndum sínum.

Í ljósi þess væri furðulegt, svo ekki sé meira sagt, ef við byggðum ekki upp fiskeldi hér á landi. Enda tala fulltrúar okkar stjórnvalda umað fiskeldi hér á landi sé komið til að vera; verði framtíðaratvinnugrein, en hvetja til varkárni og vandaðra vinnubragða. Undir það er eðlilegt og sjálfsagt að taka.

Eittfiskeldisleyfi á ríflega 900 dögum

Þannig hefur líka verið staðið að málum hér á landi. Það er farið að með mikilli gát. Þess vegna er erfitt að skilja hvað við er átt þegar sagt er að nú sé rétt að hægja á útgáfu leyfa til fiskeldis hér við land. Hægja á. Hvernig er það í rauninni hægt? Fiskeldisuppbyggingin fer hér fram á hraða snigilsins og verður sú dýrategund þó seint sökuð um að fara sér að einhverju óðslega.

Endurskoðuð lög um fiskeldi tóku gildi í ársbyrjun 2015. Fyrir tveimur og hálfu ári. Og hver er staðan? Á þessum tíma, þeim ríflega 900 dögum sem liðnir eru frá gildistöku laganna, hefur verið veitt eitt fiskeldisleyfi í sjó – og það var stækkun á fyrirliggjandi fiskeldisleyfi. Eitt leyfi á rífum 900 dögum. Og svo talamenn um að hægja á. Hvað er þá hæfilegur hraði? Eitt leyfi á þriggja árafresti, eða fimm ára fresti?

Fjárfestá Vestfjörðum einum fyrir rífa 20 milljarða króna

Rétt er það sem stjórnvöld hafa sagt. Fiskeldi er komið til aðvera á Íslandi. Enda hefur þegar verið fjárfest í greininni á síðustu 2 til 3árum fyrir tugi milljarða króna. Á Vestfjörðum einum nemur sú fjárfesting um 21 milljarði króna, sem er ígildi 9 stórra ísfisktogara af þeirri gerð sem hafa verið að koma til landsins á síðustu mánuðum. Þetta eru engar smá tölur í ekki stærra hagkerfi en því vestfirska og hefur haft mikil og jákvæð áhrif og mun hafa enn frekari áhrif á komandi misserum.

Fiskeldier þekkingaratvinnugrein

Fiskeldi er þekkingaratvinnugrein. Hún krefst fjölþættsvinnuafls, sérhæfðrar þekkingar og menntunar á mörgum sviðum. Athyglisvert er að í því góða atvinnuástandi sem nú ríkir í landinu er mikil eftirspurn eftirstörfum í greininni. Reynsla fiskeldisfyrirtækjanna er sú að fólk sækist eftir störfunum.

Fiskeldihefur snúið byggðaþróuninni við

Þar sem fiskeldi hefur náð að festa rætur hefur byggðin eflst. Svo háttar til að á þeim svæðum sem fiskeldið er að byggjast upp, á Vestfjörðum og Austurlandi, hefur byggðin víðast hvar verið í vörn. Með tilkomu fiskeldisins hafa menn náð að snúa þeirri vörn í sókn. Glöggt dæmi um það er þróunin í grunnskólanum á Bíldudal. Þar var sú staða uppi og hafði verið um árabil að nemendum fækkaði. Með tilkomu fiskeldisins hefur orðið algjör viðsnúningur. Nemendum hefur fjölgað í skólanum um helming og er til vitnis um að ungt fólk, sem hefur trú á framtíðinni þar hefur sest að. Þetta er skýrt dæmi um hin jákvæðu áhrif sem fiskeldið hefur í dreifðum byggðum.

Aðgerðir til að koma í veg fyrir erfðablöndun

Miklar framfarir hafa orðið i allri fiskeldistækni á undandförnum árum og fyrirsjáanlegt er að sú þróun heldur áfram. Fiskeldismenn skynja vel ábyrgð sína, bæði gagnvart hinu samfélagslega umhverfi og einnig náttúrunni. Vitaskuld á að taka alvarlega þegar menn viðra áhyggjur sínar af áhrifum fiskeldis á villta laxastofna. Þá ber að hafa í huga að fyrirsjáanlega mun fiskeldið byggjast afar hægt upp hér á landi á næstu árum. Framleiðsla á laxi í fiskeldi verður ekki nema um 10 þúsund tonn í ár og mun taka einhver ár að fara upp í 20 til 25 þúsund tonn. Það er agnarsmá framleiðsla í samanburði við önnur lönd. Bættur búnaður gerir öryggi við framleiðsluna meiri og reynslan hefur fært okkur heim sanninn um það. Með skipulagðri vöktun við laxveiðiár má afstýra því að fiskur sem kann að sleppa úr eldi rati upp í árnar. Stærstur hluti íslensku strandlengjunnar er og hefur verið lokaður fyrir fiskeldi allt frá árinu 2004. Fiskeldi er því og verður stundað fjarri helstu laxveiðiám okkar. Miklar framfarir eru í hvers konar líftækni sem dregur úr áhættu áerfðablöndun. Og áfram má telja.

Gætileg uppbygging, undir ströngu eftirliti þar sem gerðar eru strangar umhverfiskröfur eins og reyndin er, skapar því ekki þá áhættu sem ætla má af glannalegum fullyrðingum sem dynja oft yfir í fjölmiðlaumræðunni.

Einar K. Guðfinnsson, formaður Landssambandsfiskeldisstöðva

Greinin birtist fyrst í Aldan

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð