„Það sem er einna skrítnast við Landsréttarmálið er hinn óljósi ávinningur. Hvað er það sem dómsmálaráðherra og ríkisstjórnin fá út úr því að breyta röð dómaranna eins og gert var? Útskýringarnar hafa satt að segja ekki staðist sérlega vel, þar rekst hvað í annars horn, og þá hlýtur maður að spyrja – hvað liggur að baki?“
Að þessu spyr Egill Helgason fjölmiðlamaður í pistli hér á Eyjunni í dag. Segir hann ekki augljóst hvað Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra og stjórnarmeirihlutanum gangi til en tillaga ráðherra var harðlega gagnrýnd í gær. Sögðu þingmenn meirihlutans að ráðherra hefði komið með málefnaleg rök fyrir tillögu sinni en því höfnuðu margir þingmenn stjórnarandstöðunnar.
Gamla Ísland
Áður en tillagan var samþykkt í gærkvöldi sagði Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra að það væri gamla Ísland að samþykkja tillögu hæfnisnefndarinnar í stað tillögu ráðherra:
„Það er ótrúlegt að hlusta á femínistanna alla í stjórnarandstöðunni gagnrýna að 7 konur og 8 karlar eru skipaðir í Landsrétt af Dómsmálaráðherra í stað 10 karla og 5 kvenna sem að svokallað faglegt mat hæfisnefndar lagði til. Það er gamla Ísland. Ég fagna því að dómsmálaráðherra leggur til eitthvað meira í anda 2017, og furða mig á því að aðrir geri það ekki,“
sagði Björt á Fésbók og bætti við að þetta væri stórt skref í þá átt að konur og karlar verði sett jafnrétthá í íslensku réttarkerfi. Því hafnaði Smári McCarthy þingmaður Pírata sem svaraði ráðherra:
Það eru allir hlynntir jöfnum kynjahlutföllum. Ef það hefðu verið öll rökin og einu breytingarnar, þá allt í lagi. En það er fleira gert, og það vakti tortryggni, sem var svo ekki slegið á með rökstuðningi. Það er algjörlega óásættanlegt að reyna að mála okkur sem viljum betri málsmeðferð upp sem andstæðinga kynjajafnréttis.
Enginn pólitískur ávinningur
Egill segir það ekki hafa verið skýrt hvað liggi að baki ákvörðun ráðherra að breyta lista hæfnisnefndarinnar:
Það hefur í raun ekki verið skýrt út svo maður sé nokkru nær. Snýst þetta þá um að koma ákveðnum einstaklingum að fremur en öðrum? Og þá kannski losna við aðra? Á hitt er að líta að þeir sem eru í hópnum sem var tekinn fram fyrir virðast ágætlega hæfir – en hið sama gildir um þá sem var hafnað. Ekki verður séð að þetta fólk sé yfirmáta pólitískt. Eða varla var allt þetta tilstand til að koma eiginkonu þingmanns (dómara með ágætt orðspor) í réttinn, því verður einfaldlega ekki trúað.
Telur Egill engan pólitískan ávinning af málinu, sérstaklega ekki fyrir Bjarta framtíð og Viðreisn:
„Málið hefur skaðað bæði ráðherrann og ríkisstjórnina. Ráðherrann magnar upp tortryggni gagnvart sér í stétt lögmanna. Sjálfstæðisflokkurinn þolir ýmislegt en samstarfsflokkarnir mega illa við svona uppákomum – fyrir Bjarta framtíð og Viðreisn er þetta heldur ógæfulegur endir á fyrsta þinginu í ríkisstjórn.“
Eldraun nýliða í mafíunni
Illugi Jökulsson rithöfundur segir að sig gruni að þetta hafi verið vígsluathöfn nýliða. Þeir sem hafi horft á mafíumyndir viti að nýliðar í mafíunni eru látnir gangast undir eldraun til að verða innmúraðir og innvígðir:
Eldraunin er fólgin í að fremja glæp sem gerir nýliðann þaðan í frá samsekan mafíuforingjunum. Þaðan í frá geta þrautspilltir foringjarnir sagt: „Þú ert eins og við.“
segir Illugi í pistli á Stundinni. Tekur hann sérstaklega fram að hann sé ekki að líkja framferði mafíunnar við íslenska stjórnmálaflokka, en aftur á móti gildi svipaðir mannasiðir í öllum þröngum valdakílkum:
Og það læðist að mér sá grunur að þegar hinir þrautreyndu spillingarforingjar Sjálfstæðisflokksins stóðu á þingi í gær og horfðu glaðir á bragði á fólk skila sér í nafnakallinu um réttarklám Sigríðar Andersen – þegar þeir horfðu á fólk eins og Theódóru Þorsteinsdóttur greiða atkvæði eins og fyrir hana var sett, og þeir horfðu á fólk eins og Pawel Bartoszek og Hönnu Katrínu Friðriksson og Jón Steindór Valdimarsson koma léttfætt koma í pontu og fara með fleipur, og þeir horfðu jafnvel á Hildi Sverrisdóttur úr sínum eigin flokki, þá hafi þeim kannski liðið ekki ósvipað og klíkuforingjum eftir vel heppnaða vígsluathöfn nýliða,
segir Illugi. Nú geti „þrautspilltir foringjarnir“ sagt:
„Nú er búið að fá þau öll til að taka þátt í spillingunni, sérhagsmunagæslunni. Við erum búin að fá þau til að tala sér þvert um hug, réttlæta lygar og málaflækjur, fúsk og valdníðslu.
Nú eru þau loksins útskrifaðir stjórnmálamenn.
Nú eru þau orðin eins og við.“