Íslendingar eru í þriðja sæti yfir þjóðir þar sem fæstir styðja fullyrðingar um yfirburði ákveðinna trúarbragða, kynþátta eða menningarheima. Gallup hefur sent frá sér niðurstöður gríðarstórrar alþjóðlegrar könnunar um viðhorf fólks til þess hvort ein trúarbrögð, einn kynþáttur eða einn menningarheimur sé öðrum æðri eða ekki. Alls tóku 66.541 einstaklingur um víða veröld þátt í henni og tóku rúmlega þúsund Íslendingar þátt í henni. Þetta er í fertugasta sinn sem könnunin er gerð og tók hún til 66 landa.
Alþjóðleg könnun Gallupsamtakanna WIN/GIA er árlega hefð sem Dr. George Gallup, þáverandi formaður samtakanna, kom á árið 1977. Hún hefur verið framkvæmd árlega síðan. Alls var könnunin lögð fyrir 66.541 einstakling víðs vegar um heiminn. Í hverju landi var hún lögð fyrir um 1.000 manna úrtak sem endurspeglaði þjóðina. Könnunin var ýmist lögð fyrir augliti til auglitis (25 lönd; n=29.211), gegnum síma (13 lönd; n=10.754), á neti (25 lönd; n=23.947) eða með blandaðri aðferð (3 lönd; n=2.629). Gagnaöflun fór fram á tímabilinu október-desember 2016. Vikmörk í könnuninni eru +/- 3-5% miðað við 95% öryggismörk.
Á Íslandi var netkönnun lögð fyrir Viðhorfahóp Gallup dagana 22.11. – 1.12.2016. Heildarúrtaksstærð var 1.792 og þátttökuhlutfall var 59,4%.
Meirihluti þátttakenda álítur engin trú, kynþáttur eða menningarheimur sé öðrum æðri. Í nokkrum löndum er afstaða fólks nokkuð skipt til þessara spurninga og í tíu löndum er meirihluti fólks á öndverðu meiði. Þetta eru einkum lönd þar sem alvarlega deilur ríkja, annað hvort innanlands eða við aðrar þjóðir segir Kancho Stoychec, forseti Alþjóðlegu Gallupsamtakana.
Svíar, Frakkar og Íslendingar líklegastir til að vera ósammála fullyrðingunum
Svíar eru umburðarlyndastir þjóða heims samkvæmt könnuninni. Heil 68.3% svarenda þar í landi hafnar þeirri fullyrðingu að sum trúarbrögð séu æðri en önnur, 68.7% þeirra er ósammála að sumir kynþættir séu æðri öðrum og 56.3% Svía eru ósammála þeirri fullyrðingu að sumir menningarheimar séu æðri en aðrir.
Frakkar eru í öðru sæti í öllum flokkum, 65% þeirra er ósammála þeirri fullyrðingu að sum trúarbrögð séu æðri en önnur, 64.1% þeirra eru ósammála því að sumir kynþættir séu æðri öðrum og 53.4% Frakka eru ósammála því að sumir menningarheimar séu æðri en aðrir.
Í þriðja sæti eru Íslendingar. 57.9% þeirra er ósammála þeirri fullyrðingu að sum trúarbrögð séu æðri en önnur, 61.7% þeirra eru ósammála því að sumir kynþættir séu æðri öðrum og 53.2% Íslendinga eru ósammála því að sumir menningarheimar séu æðri en aðrir.
Stærstur hluti íbúa í Paragvæ, Bangladesh og Palestínu sammála fullyrðingunum
Íbúar Paragvæ eru að langstærstum hluta sammála því að sum trúarbrögð séu æðri öðrum, sem og sumir kynþættir. Meirihluti íbúa Suður-Ameríkuríkisins eru einnig á þeirri skoðun að sumir menningarheimar séu æðri öðrum. Sama er uppi á teningnum í Bangladesh og Palestínu en þar er fólk mun líklegra til að vera á þeirri skoðun að sumir menningarheimar séu æðri öðrum en í Paragvæ. Aðeins eitt Evrópuland er á listanum yfir lönd sem taka undir fullyrðingarnar að stærstum, Makedónía.