Finnur Árnason forstjóri Haga hafnar því alfarið að Hagar hafi hringt í íslenskan framleiðanda og sagt honum að ef viðkomandi myndi selja sínar vörur í Costco þá yrðu þær fjarlægðar úr hillum Hagkaupa og Bónuss.
Sjá frétt: Segir vörur fjarlægðar úr hillum Hagkaupa og Bónus ef þær eru seldar í Costco
Þetta eru hrein ósannindi og rógur. Við lítum þetta mjög alvarlegum augum,
segir Finnur í samtali við Eyjuna:
Okkar samskipti við byrgja hafa aldrei verið með þessum hætti og okkur myndi aldrei detta í hug að gera svona. Eins og ég sagði, þetta eru hrein ósannindi og grófur rógur.
Fram kemur á vef Viðskiptablaðsins að blaðið standi við frétt sína.