Ekki er marktækur munur á fylgi Bjartrar framtíðar og Flokki fólksins. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun MMR. Björt framtíð mælist með 3,4 prósent fylgi meðan Flokkur fólksins mælist með 3,2 prósent fylgi. Könnunin var framkvæmd dagana 11. – 16. maí 2017 og var heildarfjöldi svarenda 943 einstaklingar.
Ríkisstjórnin stendur í stað
Samkvæmt könnuninni styðja 31,4 prósent ríkisstjórnina sem er nánast sama fylgi og ríkisstjórnin mældist í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn mældist sem fyrr með mest fylgi eða 25,6 prósent. Vinstri grænir mældust með næst mest fylgi eða 21,4 prósent. VG dalar um 2 prósentustig milli kannanna. Píratar mældust með 14,1 prósent fylgi, Framsókn með 12,2 prósent og bætir örlítið við sig, Samfylkingin með 9,3 prósent og dalar lítillega milli kannanna. Viðreisn mældist með 5,5 prósent sem er hálfu prósentustigi meira en í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist samanlagt 5,4%, þar af er Dögun með 2,7% og Íslenska Þjóðfylkingin með 0,2%.