Gísli Marteinn Baldursson dagskrárgerðarmaður á RÚV og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að núverandi borgarfulltrúar séu með málflutningi sínum að hverfa frá stefnu sem samþykkt var í borgarstjórn og það sé lýðskrum. Gísli fór yfir niðurstöður Reykjavíkurþings Sjálfstæðisflokksins sem haldið var á dögunum þar sem flokksmenn samþykktu að endurskoða aðalskipulag borgarinnar tafarlaust og leita nýrra byggingasvæða. Gísli segir á bloggsíðu sinni ástæðu núverandi stefnu einfalda:
Ástæða þessarar stefnu er ekki aðeins sú að þetta er umhverfisvænna, ódýrara og vænlegra fyrir þau hverfi sem fyrir eru, heldur er ástæðan líka sú að borgarbúar vilja ekki útþenslustefnuna. Raunar er það svo, sýna kannanir, að fleiri búa austan Elliðaáa en vilja það. Ástæðan er einfaldlega sú að fólk er komið með nóg af löngum ferðalögum til og frá vinnu, það er búið að átta sig á því að bílaumferð skemmir borgina og veldur banvænni mengun,
segir Gísli. Því sé „algjört glapræði fyrir borgarstjórn“ að byggja ný hverfi utan núverandi byggðar:
„Ný úthverfabyggð er ekki lausn heldur upphaf að fjölmörgum nýjum vandamálum — og alveg sama hversu erfitt ástand er á íbúðamarkaði þessa mánuðina er mjög mikilvægt að við freistumst ekki til að taka slíka ákvörðun.“
Segir hann stefnu Sjálfstæðisflokksins munu leiða til meiri mengunar, fleiri slysa, sé kostnaðarsamari fyrir íbúana og hið opinbera en að þétta byggðina eins og sé verið að gera:
Lýðskrumarar tala núna um að þétting byggðar sé „allt of dýr“. Það er annaðhvort fáfræði eða misskilningur,
segir Gísli og bætir við:
Það er sorglegt að kjörnir fulltrúar í borginni og á Alþingi skuli ekki hafa áhuga eða metnað til að þekkja slík grundvallaratriði.
Halldór Halldórsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni svarar Gísla og vandar honum ekki kveðjurnar:
Er Gísli Marteinn að segja að 270 lýðskrumarar hafi mætt á Reykjavíkurþing og mótað stefnu? Mér finnst það lítilsvirðing við það góða fólk sem mætti og vann að stefnumótun af heiðarleika og yfirsýn með þekkingu á þörfum borgarbúa. Það býr nefnilega fólk alls staðar í borginni með mismunandi þarfir. Stefna okkar Sjálfstæðisfólks gagnast öllum borgarbúum og Reykjavíkurþing lagði grunn að góðri stefnu.