Í nýjum pistli á Pressunni vandar Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, forsvarsmönnum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og forsvarsmönnum HB Granda ekki kveðjurnar. Skemmst er að minnast þess að HB Grandi tilkynnti um hópuppsagnir á Akranesi í kjölfar þess að tekin var sú ákvörðun að færa botnfiskvinnslu fyrirtækisins til Reykjavíkur. Þetta var gert í hagræðingarskyni að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, forstjóra HB Granda.
Vilhjálmur segir það skjóta skökku við að „snillingarnir“ hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi kalli það ábyrgða byggðastefnu hjá HB Granda að „stúta fjöreggi okkar Skagamanna í atvinnumálum á einni nóttu.“
Að mati verkalýðsforkólfsins er rót vandans það kerfi sem er við lýði á landinu í fiskveiðistjórnun. Það sé búið að „leggja að velli þriðju stærstu verstöð landsins á nokkrum árum“ sem sé bæði ótrúleg og ósvífið.
Vilhjálmur rifjar upp það þegar útgerðarfyrirtækið Haraldur Böðvarsson var sameinað Granda árið 2004. Þá störfuðu 350 manns hjá Haraldi Böðvarssyni og greiddi fyrirtækið 2 milljarða í laun. Á Akranesi var 170 þúsundum tonnum af afla landað. Þetta er allt fyrir bí og Vilhjálmi þykir það undarlegt að formaður SFS tali um það sem ábyrga stefnu, í raun hafi verið teknir tveir milljarðar út úr bæjarfélaginu sem hafa muni alvarlegar afleiðingar.
Það er líka alveg magnað að verið sé að reyna að blekkja stjórnmálamenn með því að segja að enn sé HB Grandi með 185 störf á Akranesi en rétt er að geta þess að þessi störf sem um ræðir eru í fyrsta lagi ekki svona mörg og í öðru lagi eru þetta fyrirtæki sem HB Grandi keypti fyrir nokkrum árum. Annað þessara fyrirtækja er hrognafyrirtækið Vignir G Jónsson sem hefur verið hér með starfsemi frá árinu 1972,
segir Vilhjálmur í pistli sínum og spyr hvort að það eigi ekki líka að þakka HB Granda fyrir að hafa ekki farið með hrognafyrirtækið Vigni G Jónsson, sem starfað hafa á Akranesi í um 45 ár úr bænum, líkt og gert var með Harald Böðvarsson.
Já svo tala forsvarsmenn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um að þessi stefna HB Granda sé ábyrg eftir að hafa slegið heilt byggðarlag bylmingsfast í kviðinn þannig að það er í keng. Enda rétt að rifja enn og aftur upp að Akranes var þriðja stærsta verstöð landsins fyrir einungis 15 árum síðan!
Því miður virðast þessir aðilar ekki vita hvað felst í samfélagslegri ábyrgð enda virðast þeir halda að þeirra ábyrgð sé fyrst og fremst að græða meira í dag en í gær.
Ég tel fulla ástæðu til að hvetja stjórnvöld til að vera á tánum en ekki hnjánum þegar kemur að því að verja hagsmuni fiskvinnslufólks og trygga atvinnu vítt og breitt um landið gagnvart þeim sem fara með tímabundinn umráðarétt yfir sjávarauðlindinni.