fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Páll Magnússon: Nú er komið að því að hækka frítekjumarkið

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 21. maí 2017 08:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Reykjanes bað Pál Magnússon fyrsta þingmann Suðurkjördæmis að svara eftirfarandi spurningum.

Fyrir liggur að ekkert auka fjármagn verður sett í lagfæringar á Reykjanesbraut eða Grindavíkurveg á þessu ári. Fleiri vegi á Suðurnesjum þarfnast mikilla endurbóta. Er hægt að sætta sig við að þessi fjölfarnasti ferðammastaður landsins þurfi áfram að bíða?

Orðalag spurningarinnar dregur upp óþarflega dökka mynd af stöðu mála. Þótt ekki sé eyrnamerkt fé til þess sem kallast nýframkvæmdir við þessa vegi þá liggur fyrir að strax í sumar verður ráðist í endurbætur og lagfæringar á þeim báðum. Þetta er fjármagnað með því sem heitir viðhaldsfé Vegargerðarinnar. Auðvitað vildum við að þetta myndi allt gerast hraðar og í stærri skrefum en okkur er allavega að miða nokkuð á leið.

Misserum saman hefur verið rætt um að innheimta gjald af þeim mikla fjölda erlendra ferðamanna sem kemur til landsins til að standa undir hluta kostnaðar við uppbyggingu vegakerfis og aðstöðu á fjölförnum ferðamannastöðum. Rætt hefur verið um ferðamannapassa, vegatolla, hækkun á gistináttaskatti, komugjöld o.fl. en ekkert gerist. Hvaða leið vilt þú fara?

Ein leið útilokar ekki aðrar í þessum efnum og kannski er farsælast að farin verði blönduð leið, líkt og við þekkjum frá ýmsum nágrannalöndum okkar. Varðandi samgöngumannvirkin sérstaklega finnst mér vel koma til greina að fjármagna hin stærstu þeirra með vegatollum eins tíðkast víða um lönd. Við þurfum innan tíðar að ráðast í mjög mikla uppbyggingu á þessu sviði og það er alveg ljóst að þeir fjármunir munu ekki fást af reglubundnum fjárlögum frá ári til árs án þess að aðrir þættir samfélagsþjónustunnar myndu láta verulega undan síga, eins og t.d. heilbrigðisþjónustan – og það er enginn tilbúinn til þess. Til að fjármagna aðra þætti innviðauppbyggingar vegna fjölgunar ferðamanna er ekkert að því að nota blöndu af komugjöldum, gistináttagjöldum, bílastæðagjöldum og þvíumlíku.

Eldri borgarar eru hvattir til þátttöku í atvinnulífinu t.d. með því að taka að sér hlutastarf. Á sama tíma eru frítekjumörk sett í 25. Þúsund krónur á mánuði. Eftir það verður 45% skerðing á greiðslum frá TR, þannig að viðkomandi heldur eftir skatta aðeins um 30% launanna. Er þetta ásættanlegt?

Það hefur öllum verið ljóst að frítekjumarkið þarf að hækka, enda er gert ráð fyrir því í þeirri ríkisfjármálaáætlun sem nú er til lokameðferðar á Alþingi. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir síðustu áramót voru þeir settir í forgang sem allra minnst höfðu á milli handanna en nú er komið að því að hækka frítekjumarkið.

Greinin birtist fyrst í Reykjanesi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra