Það er margt að gerast í Garðinum. Íbúðir hafa rokið út, hótel að opna, Garðskagi laðar til sín ferðamenn, Sveitarfélagið stendur vel, Víði gengur vel í fótboltanum. Reykjanes heyrði hljóðið í Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra.
Búist er við að í ár heimsæki mikill fjöldi ferðamanna og gesta Garðskaga. Vegurinn út á Garðskaga er hörmulegur og þolir örugglega ekki alla þessa umferð. Stendur til að lagfæra hann á næstunni?
Umferð hefur aukist mjög mikið út á Garðskaga á síðustu misserum og hefur vegurinn ásamt bílastæðunum látið undan vegna mikils umferðarálags. Í sumar verður lagt nýtt slitlag yfir veginn út á Garðskaga, en einhver bið verður á því að slitlag á bílastæðum verði endurnýjað þar sem Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hafnaði umsókn um styrk til þess á þessu ári. Við vonumst til að það verkefni komi til framkvæmdar á næsta ári.
Það er verið að byggja við Byggðasafnið. Hvaða hlutverki á sú bygging að þjóna?
Viðbyggingin við hús byggðasafnsins er salernishús sem á að þjóna gestum safnsins og veitingahússins, en einnig fólki sem dvelur á tjaldsvæðinu eða er á svæðinu á Garðskaga að öðru leyti. Með þessu er verið að bæta salernisaðstöðu á Garðskaga og veitti Framkvæmdasjóður ferðamannastaða styrk til verkefnisins á síðasta ári.
Fjölgaði um 6%
Hvernig er íbúaþróunin síðustu mánuðina?
Á síðasta ári fjölgaði íbúum sveitarfélagsins um nálægt 6% og voru 1.500 talsins um síðustu áramót. Samkvæmt bráðabirgðatölum í lok apríl sl. voru íbúarnir orðnir 1.520.
Er nægilegt framboð til af lóðum?
Talsvert er af lausum lóðum samkvæmt þeim deiliskipulögðu svæðum sem nú liggja fyrir. Nú stendur hins vegar yfir vinna við að deiliskipuleggja íbúðasvæði í tveimur hverfum og er stefnt að því að þær lóðir verði tilbúnar til úthlutunar undir haust í ár. Fram hefur komið nokkur eftirspurn eftir íbúðalóðum, sveitarfélagið getur mætt þeirri eftirspurn og gott betur.
Hvernig er atvinnuástandið?
Nú er það svo að Suðurnesin eru eitt atvinnusvæði og mikil eftirspurn hefur verið eftir vinnuafli á svæðinu að undanförnu. Útlit er fyrir að svo verði áfram, sem segir að atvinnuástand er mjög gott um þessar mundir á Suðurnesjum og þar með í Garðinum.
Hvað með atvinnu fyrir skólafólkið í sumar?
Skólafólk ætti almennt að standa vel að vígi varðandi atvinnumöguleika í sumar.
Hvaða framkvæmdir eru fyrirhugaðar í sumar?
Frágangur á umhverfi við Útskálar og Útskálakirkju
Samkvæmt framkvæmdaáætlun ársins eru fyrirhugaðar ýmsar framkvæmdir, í fjárhagsáætlun ársins eru fjárheimildir upp á 113 milljónir króna til fjárfestinga. Sem dæmi má nefna fráveituverkefni, þar sem útrásir við hafnarsvæði verða lagðar af og fráveitan tengd inn á stofnlögn og útrás norðan Þorsteinsbúðar. Þá verður leyst úr húsnæðismálum tónlistarskólans, lagt verður slitlag yfir Skagabraut út að Garðskaga og unnið að stækkun Útskálakirkjugarðs í samstarfi við sóknarnefnd kirkjunnar. Þá er unnið að frágangi á umhverfi við Útskálar og Útskálakirkju og uppbyggingu salernisálmu við hús byggðasafnsins. Auk þessara verkefna eru framkvæmdir við götur, gangstéttar og göngustíga. Loks erum við farin að huga að stækkun Gerðaskóla, en útlit er fyrir að fram komi vöntun á skólastofum innan nokkurra ára, en ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í þá framkvæmd.
Auk fjárfestinga er í fjárhagsáætlun ársins gert ráð fyrir ýmsum viðhaldsverkefnum vegna fasteigna, gatnakerfis og annarra eigna sveitarfélagsins upp á hátt í 40 milljónir króna.
Tekið skal fram að öll þessi verkefni eru fjármögnuð af skatttekjum sveitarfélagsins og eigin fé, án lántöku.
Ákvörðun í júní hvort kosið verður
Unnið hefur verið að könnun á kostum og göllum hugsanlegrar sameiningu við Sandgerði. Hvenær verður niðurstaðan kynnt fyrir íbúum?
Eins og áður hefur komið fram verður boðað til íbúafunda í báðum sveitarfélögunum nú í lok maí, þar sem verður kynning á niðurstöðum þeirrar vinnu sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði. Í framhaldi af því munu bæjarstjórnir sveitarfélaganna taka um það ákvörðun á fundum sínum í byrjun júní hvort boðað verður til íbúakosninga um sameiningu sveitarfélaganna. Ef af því verður er gert ráð fyrir að kosningin geti farið fram í október eða nóvember á þessu ári og frekari kynning verði á málinu tímanlega fyrir kjördag, eins og kveðið er á um í Sveitarstjórnarlögum.