Fjölmargir hagsmunaaðilar í veiði, hvalaskoðun, útivist og sjómennsku við Eyjafjörð skora á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að friða Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi á laxi. Segja þeir að fyrirhugað risaeldi á 10.000 tonnum af laxi myndi spilla hreinni ímynd fjarðarins, skaða hagsmuni ferðaþjónustu, valda smábátaeigendum búsifjum, bitna harkaleg á villtum laxi sem gengur í árnar á svæðinu og að öllum líkindum eyða sjóbleikjustofninum í Eyjafirði.
Í áskorun til ráðherra segir meðal annars:
Við undirrituð tökum heilshugar undir efasemdir þínar um fyrirhugað sjókvíaeldi á laxi í Eyjafirði. Einnig lýsum við yfir ánægju með ummæli þín þar sem þú segist vilja gæta varúðar og verja náttúruna gegn umhverfisspjöllum af völdum laxeldis í sjó.
Við leggjumst alfarið gegn sjókvíaeldi á laxi í Eyjafirði. Fyrirhugað risaeldi á 10.000 tonnum af laxi myndi spilla hreinni ímynd fjarðarins, skaða hagsmuni ferðaþjónustu, valda smábátaeigendum búsifjum, bitna harkalega á villtum Atlantshafslaxi sem gengur í ár á svæðinu og að öllum líkindum eyða sjóbleikjustofnum í Eyjafirði.
Þá segir ennfremur að atvinnuuppbygging í Eyjafirði séu ein helstu rök með áðurnefndum laxeldisáformum:
Ljóst er að þessi áform geta spillt náttúrugæðum fjarðarins og stórspillt möguleikum fjölda atvinnugreina sem stundaðar eru í Eyjafirði og geta því á engan hátt verið innlegg í umræðu um uppbyggingu atvinnulífs fjarðarins og nærbyggða.
Skora aðilarnir á ráðherra að friða Eyjafjörð fyrir öllu sjókvíaeldi á norskum laxi á grundvelli laga um náttúruvernd og laga um verndun villtra laxa og silungsstofna. Nú þegar hafi Faxaflói, Breiðafjörður, Húnaflói, Skagafjörður, Skjálfandaflói, Þistilfjörður, Bakkaflói, Vopnafjörður og Héraðsflói verið friðaðir og ekki sé hægt með nokkru móti hægt að benda á haldbær rök þess efnis að Eyjafjörður ætti að falla utan slíkra friðunaraðgerða náttúrunni til handa.
Undir þetta rita hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador, Bergmenn fjallaleiðsögumenn, Klettur félag smábátaeigenda og veiðifélög Svarfaðardalsár, Hörgár, Eyjafjarðarár, Fnjóskár, Laxár í Aðaldal, Skjálfandafljóts, auk Stangveiðifélagsins Flúða, Flugunnar á Akureyri og Stangaveiðifélags Akureyrar.