fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Reka Landspítalann í mánuð eða halda Eurovision?

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 9. maí 2017 13:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðin fylgist með Svölu Björgvinsdóttur í Kænugarði í kvöld.

Það liggur fyrir að ef Svala Björgvinsdóttir fer með sigur af hólmi í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þá muni talsverður kostnaður falla á Ísland við að halda keppnina. Farið er yfir þetta á glettinn hátt í Markaðspunktum greiningadeildar Arion Banka í dag en í kvöld mun Svala syngja lagið Paper fyrir Íslands hönd. Þó svo að Svala sé einstaklega hæfileikarík og að hálf þjóðin hafi tekið höndum saman við að velja lagið þá er á brattann að sækja því þegar er búið að spá mörgum þjóðum áfram og aðeins 10 komast áfram af 18.

Icy flytur Gleðibankann í Bergen 2.maí 1986. Síðan þá hafa Íslendingar búið sig undir sigur í Eurovison.

Ef svo vill til að Svala fari með sigur af hólmi þá kæmi það til með að kosta 4,1 milljarð króna að halda keppnina árið 2018. Það eru talsverðir peningar og margt hægt að gera við þá. Hefur greiningadeildin því tekið saman nokkra hluti sem hægt er að gera við alla þessa peninga, hafa skal í huga að þetta er aðeins til gamans gert.

Til dæmis sé hægt að kaupa 2.590.484 eintök af Waterloo með ABBA á vínyl, eða rúmlega 7 eintök á hvern Íslending. Dreifingarkostnaður er hins vegar annað mál.

Fyrir 4,1 milljarð króna er hægt að framleiða 4 seríur af Ófærð, rekið 3 sinfóníuhljómsveitir í heilt ár, rekið RÚV í 263 daga, farið með íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu á 3 EM eða þá rekið 51 lið í Pepsi-deild karla í heila leiktíð.

Þegar við svo vinnum Eurovision, hvar á þá að halda keppnina. Hugsanlega í Laugardalshöllinni, Egilshöll eða í Kórnum þar sem Justin Bieber spilaði og Rammstein stíga á stokk síðar í þessum mánuði. Nema hægt sé að finna góðan stað á landsbyggðinni, t.d. Herjólfsdal, því myndi Evrópa seint gleyma.

Fátt hefur verið meira til umræðu en Landspítalinn undanfarin misseri, hann kostar töluvert og fyrir 4,1 milljarða er hægt að reka hann í tæpan mánuð.

Það er líka margt annað sem hægt er að eyða 4,1 milljarði í, til dæmis yrði hægt að byggja 143 80fm. íbúðir eða kaupa 106 80fm. íbúðir, fyrir utan hverfi 101 og 107 í Reykjavík. Hægt yrði að borga 777 grunnskólakennurun árslaun eða borgað menntun í eitt ár fyrir 2.296 grunnskólanemendur. Einnig yrði hægt að kaupa Samsung Galaxy S7 handa rúmlega 16% þjóðarinnar eða iPhone 7 síma fyrir rúmlega 12% þjóðarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi