fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Kristján Þór: Ótímabær fréttaflutningur af sameiningu

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 9. maí 2017 10:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra. Mynd/DV

Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra segir að fréttaflutningur af mögulegri sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans hafi verið ótímabær þar sem niðurstaða könnunnar á kostum sameiningar skólanna hafi ekki legið fyrir, segir ráðherra það miður að umræðan hafi farið af stað svo snemma í ferlinu.

Kristján Þór mætti á opinn fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í morgun til að ræða málið, sem hefur ollið nokkrum titringi meðal starfsmanna og nemenda skólans, hefur ráðherra verið harðlega gagnrýndur fyrir leyndarhyggju þar sem þingmenn stjórnarandstöðu, kennarar og nemendur fréttu fyrst af mögulegri sameiningu í fjölmiðlum. Var sameining skólanna til að mynda ekki rætt á fundi nefndarinnar 25.apríl síðastliðinn þegar bæði Steinn Jóhannsson skólameistari FÁ og Kristján Þór mættu fyrir nefndina til að ræða fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Sagði Kristján Þór hins vegar að hann hefði verið búinn að ræða málið við ríkisstjórnina.

Sagði Helmut Hinrichsen gæðastjóri FÁ í grein í Fréttablaðinu í dag að erfitt sé að ræða efnislega kosti og galla breytinga þegar engar upplýsingar liggja fyrir um forsendur þeirra og enginn faglegur undirbúningur hefur átt sér stað. Telur Helmut vinnubrögð ráðherra vera ófagleg og lítilsvirðing gagnvart starfsmönnum skólanna, nemendum og foreldrum þeirra.

Kristján Þór sagði í morgun að ráðuneytið hafi skoðað sameiningarkosti frá árinu 2013 en ekki væri verið að ræða aðra sameiningarkosti að svo stöddu, það sé hins vegar ljóst að margir framhaldsskólar glími við erfiðleika, nemendum fækki og því sé brýnt að huga að styrkingu skólanna. Telur ráðherra að málið hafi verið rætt út frá þröngu sjónarhorni fram til þessa vegna ótímabærs fréttaflutnings:

Það er bagalegt að það sé ekki rætt almennt um stöðuna en málið kviknar með þeim hætti að það er einfaldlega ekki neitt annað í boði en að ræða þetta út frá verkinu eins og það er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi