fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Góð afkoma í Grindavík

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 7. maí 2017 08:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2016 hefur verið lagður fram til fyrri umræðu. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu stærðir í ársreikningi og helstu frávik frá áætlun. Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Páll Jóhann

Bókun

Rekstrarniðurstaða A-hluta er afgangur að fjárhæð 277,5 milljónir króna. Áætlun gerði ráð fyrir 71,3 milljónum króna í rekstrarafgang. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A og B hluta, er 299,8 milljónir króna í afgang en áætlun gerði ráð fyrir 89,3 milljónum króna í rekstrarafgang. Munar þar mestu um að rekstrartekjur eru 157,8 milljónum króna yfir áætlun.

Helstu frávik í rekstri samantekinna reikningsskila A og B hluta eru:

  • Útsvar og fasteignaskattur eru 44,1 milljón króna hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
  • Framlög Jöfnunarsjóðs eru 159,9 milljónum króna hærri en áætlun.
  • Aðrar tekjur eru 45,8 milljónum króna lægri en áætlun.
  • Laun og launatengd gjöld eru 36,4 milljónum króna hærri en áætlun.
  • Annar rekstrarkostnaður er 79,6 milljónum króna lægri en áætlun gerði ráð fyrir.
  • Afskriftir eru 13,3 milljónum króna hærri en áætlun.
  • Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld eru 22,6 milljónum króna hagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir í samanteknum reikningsskilum A og B hluta eru 8.716,8 milljónir króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru 1.543,5 milljónir króna. Lífeyrisskuldbinding er 583,1 milljón króna og þar af er áætluð næsta árs greiðsla 25,4 milljónir króna. Langtímaskuldir eru 724,8 milljónir króna og þar af eru næsta árs afborganir 15,9 milljónir króna. Eigið fé í samanteknum reikningsskilum er 7.173,3 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 82,3%.

Skuldahlutfall A- og B-hluta skv. 2. tl. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nemur 52,8% af reglulegum tekjum. Ef undanskilin er skuld að fjárhæð 513,0 milljónir króna sem til er komin vegna kaupa á Orkubraut 3 af HS Orku hf. og er greidd með auðlindagjaldi og lóðarleigu frá HS Orku hf. , þá er skuldahlutfallið 16,2%.

Skuldaviðmið skv. 14. gr. reglugerðar nr. 502 frá 2012 er negatíft í bæði í A-hluta og A- og B-hluta þar sem hreint veltufé er hærra en heildarskuldir að teknu tilliti til frádráttar vegna lífeyrisskuldbindingar. Í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta er skuldaviðmiðið -10,2%

Rekstur í samanteknum reikningsskilum A og B hluta skilaði 609,6 milljónum króna í veltufé frá rekstri sem er 20,9% af heildartekjum en áætlun gerði ráð fyrir veltufé frá rekstri að fjárhæð 341,9 milljónum króna.

Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum í samanteknum reikningsskilum A og B hluta nam á árinu 2016, 213,3 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 484 milljónum króna.

Á árinu voru engin ný lán tekin en afborganir langtímalána voru 19,9 milljónir króna.
Handbært fé hækkaði um 299,5 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir lækkun að fjárhæð 187,6 milljónum króna. Handbært fé í árslok 2016 var 1.595,3 milljónir króna.

Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2016 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Greinin birtist fyrst í Reykjanesi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð