Litlu munaði að Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri grænir, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin hefði myndað ríkisstjórn í vetur. Var Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir búnir að gera drög að stjórnarsáttmála flokkanna fjögurra. Þetta kemur fram í grein Kristjáns Guy Burgess fyrrverandi framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar sem birtist í Skírni í dag. Mikið gekk á í nóvember og desember og fram í janúar á þessu ári þegar kom að því að mynda ríkisstjórn í kjölfar kosninganna síðasta haust. Fengu flestir formenn flokkanna stjórnarmyndunarumboð og tók það nokkrar lotur þangað til ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar leit dagsins ljós.
Samkvæmt Kristjáni Guy var Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hörð á því að mynda ekki ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki án aðkomu Samfylkingarinnar, var því mikið þrýst á Loga Einarsson formann Samfylkingarinnar að taka þátt í stjórnarmyndunarviðræðum.
Hins vegar hafi fátt verið í stjórnarsáttmálanum sem Samfylkingin gat sætt sig við og hafi flokkurinn metið það svo að stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar gæti náð meiri árangri í sjávarútvegs- og Evrópumálum en Samfylkingin í fjögurra flokka stjórn, því var ákveðið að bíða.
Kristján Guy segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi viljað skoða hvort Framsókn, Vinstri grænir og Samfylkingin gætu gert Sjálfstæðisflokknum sameiginlegt tilboð:
Þetta var háleynilegt prójekt og þegar þau ræddu saman formennirnir milli jóla og nýárs og byrjuðu að vinna með texta, var tekið loforð um að einungis einum öðrum yrði blandað í málið í hverjum flokki. Þess vegna kom það flestum á óvart þegar fréttir birtust af málinu 2. janúar í Morgunblaðinu,
segir Kristján Guy. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hafi vitað af áætlun flokkanna þriggja en hann hafi ekki viljað blanda sér í það á meðan hann væri að ræða við Viðreisn og Bjarta framtíð.
„Þegar dró að úrslitastundu á fyrsta vinnudegi nýs árs var tíminn að hlaupa frá þeim sem vildu nýta tækifærið og freista Bjarna Benediktssonar. Honum hafði þótt samvinna við Framsókn og Vinstri græn afar ákjósanlegur kostur þessa tvo mánuði og nú gæti hann verið á borðinu. En Katrín var enn hörð á því að Vinstri græn færu ekki ein til samstarfs við stjórnarflokkana sem höfðu hrökklast frá völdum og þess vegna þyrfti Samfylkingin að svara því hvort hún væri með,“
segir Kristján Guy. Logi hafi ekki talað það sína ábyrgð að koma í veg fyrir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, vildi hann bíða eftir því hvert samræður þeirra myndu leiða:
Skilaboð voru gefin um að Samfylkingin yrði til viðræðu ef leysa þyrfti stjórnarkreppu en bíða yrði átekta eftir því hvert samtal Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar myndi leiða.