Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir þingmenn stjórnarandstöðunnar fyrir að velta ekki fyrir sér hvort sameining Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans geti verið til hagsbóta fyrir nemendur og skattgreiðendur.
Líkt og greint var frá í gær þá gagnrýndi stjórnarandstaðan ríkisstjórnina harðlega vegna málsins í gær, bæði fyrir að sameina skólana og fyrir að gera það án samráðs við stjórnarandstöðuna og þing.
Hnýtti Brynjar í stjórnarandstöðuna á Fésbók í dag:
Stjórnarandstöðuþingmenn, bæði botnfreðnir sósíalistar og þeir sem kenna sig við frjálslyndi og umburðarlyndi, voru í miklu uppnámi í gær þegar fréttist að menntamálaráðuneytið væri með til skoðunar sameiningu Fjöltækniskólans og Fjölbrautaskólans í Ármúla. Voru þau með böggum hildar yfir þeirri brjálæðislegu ósvinnu að ríkisrekni Ármúlaskólinn gæti orðið hluti af öflugum einkareknum framhaldskóla,
segir Brynjar og bætti við:
„En engum þeirra datt í hug að velta fyrir sér hvort þessi hugsanlega sameining gæti leitt til betri skóla og skynsamlegri nýtingu skattpeninga og væri því til hagsbóta fyrir nemendur og samfélagið allt, sem auðvitað ætti að vera hlutverk stjórnmálamanna.“
Frost, kreddur og væðing
Svandís Svavarsdóttir þingmaður Vinstri grænna spurði svo Brynjar hvort Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra hefði upplýst þingflokk Sjálfstæðisflokksins um þessi áform:
Jæja, svona dagur í dag. Kkv., Botnfosni sósíalistinn. Es. Var Stjáni búinn að segja þingflokknum frá þessu? Kkv., Sami sósíalistinn.
Sagði Brynjar Kristján Þór segði þingflokknum ekki frá öllu sem sé til skoðunar innan menntamálaráðuneytisins frekar en aðrir ráðherrar í gengum tíðina:
Hins vegar hafa allir þingmenn vitað að í öllum ráðuneytum er til skoðunar á hverjum tíma hagræðingarmöguleikar og betri nýting skattpeninga. Ef svo væri ekki væri eitthvað að.
„Húrra,“ sagði Svandís og bætti við:
Einkavæðum hvar sem það er hægt. Og svo mega vinir okkar líka græða á rekstrinum. Á kostnað skattgreiðenda. Hægri kreddur og einkavinavæðing segi ég. En það er að því að ég er botnfrosin.
Brynjar svaraði því með:
Vinstri kreddur og ríkisvæðing segi ég og er þó ekki botnfrosinn.