fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Utanríkisráðherra harðorður: Við krefjumst þess að rússnesk stjórnvöld taki ábyrgð

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 4. maí 2017 18:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Mynd/Sigtryggur Ari

„Í fullni hreinskilni þá eru fréttirnar frá Téteníu svo hræðilegt að það er erfitt að ímynda sér að svona hlutir geti átt sér stað á okkar tímum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, hann bætir við: „Þetta minnir óneitanlega á útrýmingarbúðirnar í síðari heimstyrjöld og gúlagið. Alþjóðasamfélagið getur ekki umborið svona brot á mannréttindum. Til að bæta gráu ofan á svart þá vilja yfirvöld í Téteníu ekki viðurkenna að verið sé að gera neitt rangt og er alveg sama um viðbrögðin.“

Segir Guðlaugur Þór í viðtali við tímaritið Gay Iceland að ríkisstjórninni sé illa brugðið við fréttirnar frá Téteníu, en líkt og greint var frá í fyrri hluta aprílmánaðar þá hafa borist fregnir þaðan um að samkynhneigðir karlmenn sæti þar grófu ofbeldi af hálfu yfirvalda og séu jafnvel myrtir fyrir það eitt að vera samkynhneigðir. Segja Mannréttindasamtök að búið sé að koma upp fangabúðum í landinu þar sem samkynhneigðir karlmenn eru vistaðir.

Sjá frétt: Samkynhneigðir karlmenn sagðir vistaðir í fangabúðum

Angela Merkel kanslari Þýskalands ræddi þetta mál við Vladímír Pútín Rússlandsforseta á fundi þeirra í Moskvu í vikunni og hvatti hún hann til að stöðva ofsóknirnar, en Tétenía er sjálfsstjórnarlýðveldi innan Rússlands. Segir Guðlaugur Þór að ofsóknirnar séu vægast sagt dapurlegar:

Við höfum alltaf barist fyrir réttindum hinsegin fólks og héldum, þrátt fyrir ýmsar hrindranir, að við værum búin að ná árangri í réttindabaráttunni. Þetta er stór skellur og sýnir okkur að það er margt ógert.

Guðlaugur Þór ræddi málið við Sergei Lavrov starfsbróður sinn í Rússlandi á fundi þeirra á dögunum og kom hann á framfæri hörðum mótmælum Íslendinga við þessu framferði:

Við fordæmum þessi mannréttindabrot og viljum ásamt fleirum að þetta mál verði rannsakað í þaula og krefjumst þess að rússnesk stjórnvöld taki ábyrgð á þessu og bindi enda á þennan hrylling í Téteníu.

Eins sorglegt og það er að segja það þá er samkynhneigð enn glæpur í 75 löndum í heiminum. Þetta verður að breytast. Það á ekki að mismuna fólki eftir kynhneigð þeirra.

Í dag til föstudags munu Samtökin ´78 standa fyrir þöglum mótmælum fyrir utan rússneska sendiráðið. Kl. 16 á föstudaginn verða svo fjöldamótmæli fyrir utan sendiráðið í Suðurgötu, er fólk hvatt til að bera bleikan þríhyrning á brjósti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð