fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Grunar að Benedikt sé súrrealisti í dulargervi stjórnmálamanns

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 4. maí 2017 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Ríkisstjórnin er að reyna að fækka sjúkum með því að efla forvarnir til dæmis með því að efla sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum og að bæta við sálfræðingum í heilsugæsluna. Einnig er verið að bæta í lyfjakostnað og bæta við nýjum lyfjum. Þetta kom fram í svari Benedikts Jóhannessonar fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna á Alþingi í hádeginu í dag.

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna.

Spurði Katrín hvað það kallist þegar þjóðin eldist, sjúklingum fjölgi bæði vegna aldurs og aukins fjölda ferðamanna, kröfur séu  gerðar um bætta þjónustu, dýrari lyf, styttri biðtíma en svo fylgir fjármagnið ekki þeim kröfum sem eru settar fram. Vísaði Katrín til gagnrýni Landspítalans á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og ummæla Benedikts í gær þar sem hann sagði að Landspítalinn væri að taka aukningu og bera það saman við kröfu og tala svo um niðurskurð.

Er ekki fullkomlega eðlilegt að tala þá um niðurskurð þó að krónum til spítalans fjölgi? Því að einhvers staðar þarf væntanlega að skera niður til að mæta þeim kröfum sem settar eru fram. Lítur ráðherra bara á þessar kröfur sem við lesum um í fjármálaáætluninni sem óskalista spítalans?,

Súrrealismi. Sonur mannsins eftir René Magritte.

spurði Katrín. Sagði Benedikt í svari sínu að verið væri að fækka sjúkum með því að efla forvarnir og tók hann undir með forsvarsmönnum Landspítalans að verið sé að taka á móti ýmsum sjúklingum á bráðamóttöku sem ættu miklu frekar að koma á heilsugæslustöðvar, því sé verið að beina í farveg. Katrín svaraði honum:

„Mig er farið að gruna að hæstv. fjármálaráðherra sé súrrealisti í dulargervi stjórnmálamanns því þetta svar minnti mig dálítið á leikritið Beðið eftir Godot. Það er spurt mjög skýrrar spurningar: Hvað kallast það þegar stjórnvöld setja fram ákveðin viðmið og kröfur um að verkefnum eigi að fjölga en fjármagnið stendur ekki undir þeim verkefnum? Er það svo að hæstv. ráðherra telji staðhæfingar spítalans rangar þegar spítalinn bendir á þetta, eins og haft er eftir honum í fjölmiðlum? Telur ráðherra það eðlilegt að settar séu fram auknar kröfur um sjúkrahúsþjónustu en fjármagnið fylgi ekki þeim kröfum? Um það snýst málið,“

sagði Katrín. Benedikt sagði það ekki von að mönnum detti í hug súrrealisma þegar hækkun sé talin vera lækkun og viðbót sem niðurskurð. Í fjármálaáætluninni sé verið að bæta 22% við heilbrigðismál, því verði ekki breytt alveg sama hversu oft það sé talið vera niðurskurður. Varðandi súrrealisma sagði Benedikt:

Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrir að líkja mér við súrrealista því að það er einmitt ein sú listgrein sem ég hef hvað mestan áhuga á og er ánægður með að vera frumkvöðull í því hér á Alþingi að mati þingmanns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð