Tveir kröfufundir verða í miðbænum í dag, verður annar fundurinn hefðbundinn kröfufundur 1.maí á vegum verkalýðshreyfingarinnar en hinn fundurinn er á vegum þeirra sem eru ósáttir við núverandi forystu verkalýðshreyfingarinnar.
Á fyrrnefnda fundinum hefst dagskráin nú kl.13 á Hlemmi þar sem gengið verður ásamt lúðrasveit niður á Ingólfstorg á útifund. Hér má einnig finna dagskrá annarra funda í dag.
Hinn fundurinn verður á Austurvelli þar sem Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalags Íslands og Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi flytja ræður. Ragnar Þór sagði á Fésbókarsíðu sinni í gærkvöldi að hann hefði óskað eftir því að halda ræðu á Ingólfstorgi en fékk ekki.
Gunnar Smári mun svo stofna Sósíalistaflokk Íslands kl.16 í dag í Tjarnarbíó. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ gagnrýndi fundinn á Austurvelli harðlega í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi og sagðist eiga erfitt með að skilja hvernig sundrung eigi að hjálpa verkalýðshreyfingunni. Oddný G. Harðardóttir þingmaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar tók í sama streng og Gylfi og sagði yfirskrift fundarins á Austurvelli, Við viljum samfélagið okkar aftur! minna óþægilega mikið á slagorð Donalds Trump Bandaríkjaforseta Make America great again!
Viljum byggja upp réttlátt samfélag
Í ávarpi sínu í dag gerði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ húsnæðismálin að umfjöllunarefni, rakti hann sögu baráttu verkafólks fyrir bættu húsnæði á 20.öld sem hafi svo farið til verri vegar. Þegar verkamannabústæðakerfið hafi verið lagt af á sínum tíma hafi ríflega 13 þúsund íbúðir verið hluti af því kerfi:
Það er enginn vafi á því að ef verkamannabústaðakerfið hefði fengið að þróast áfram í friði fyrir pólitískri þröngsýni hægri aflanna væru um 20 þúsund íbúðir í þessu kerfi í dag og aðstæður bæði tekjulægri fjölskyldna og ungs fólks allt aðrar og betri,
sagði Gylfi. Segir hann ástandið á fasteignamarkaðnum grafalvarlegt og það sé til umræðu innan verkalýðshreyfingarinnar um að hún ætti að beita sér fyrir því að verja fólk gegn misnotkun fasteignabraskara:
Verkalýðshreyfingin hefur áður staðið að stofnun byggingarsamvinnufélaga með það að markmiði að auðvelda félagsmönnum að eignast íbúð á hagkvæmari hátt. Nú þarf að hefjast handa ekki seinna en strax til að félagsmenn okkar komist út úr þeim ógöngum sem stjórnvöld hafa att þeim út í í húsnæðismálum. Við viljum byggja upp réttlátt samfélag þar sem gott og öruggt húsnæði þykir sjálfsögð mannréttindi – ekki forréttindi.
Verkalýðshreyfingin hlustar ekki
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gerði hins vegar lífeyrissjóðakerfið að sínu umfjöllunarefni á degi verkalýðsins. Hafði Fréttablaðið eftir Ragnari í dag að það væri hans mat að lífeyrissjóðakerfið ætti að stærstum hluta að vera utan íslensks hagkerfis því það ynni á móti lífsgæðum fólks frá degi til dags. Vill hann að komið verði í veg fyrir að lífeyrissjóðirnir fjárfesti í bönkum til að koma í veg fyrir óæskileg ítök sem almenningur þurfi á endanum að borga fyrir. Frekar ættu lífeyrissjóðirnir að standa að viðskiptabanka á félagslegum grunni án tenginga við fjárfestingabankastarfsemi.
Segir Ragnar að sjóðirnir séu stærstu eigendur fasteignalána á Íslandi:
Lífeyrissjóðakerfið setur framtíðarkynslóðir í stórkostleg vandræði. Lífeyrissjóðir eru leigurisar á leigumarkaði í gegnum félög eins og Gamma og fleiri leigufélög og hafa þar af leiðandi hag af hárri leigu. Sjóðirnir eru stærstu eigendur fasteignalána á Íslandi og hafa þar af leiðandi hag af verðtryggingunni og háum vöxtum,
sagði Ragnar. Segir hann að ífeyrissjóðirnir ættu að gera meira til þess að draga úr þenslu á fasteignamarkaði með hagkvæmum lausnum fyrir kaupendur:
Hérna gerist ekkert nema rétt fyrir kosningar. Ég vænti þess að sett verði Íslandsmet í úthlutun lóða fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar í öllum sveitarfélögum. Það er enginn að fylgjast með því hvað hinn er að gera og hvert fara þessar lóðir? Fara þær í hendurnar á bröskurunum, eins og fyrir hrun? Lóðir ganga kaupum og sölum í gegnum fasteignafélög eða fasteignabraskara og þetta endar síðan í fanginu á okkur neytendum, fólkinu sem þarf að borga fyrir þetta á uppsprengdu verði, þangað til næsta bóla springur.
Telur Ragnar að innan ASÍ og SA sé enginn vilji til breytingar, hann hafi setið í stjórn VR í 8 ár en aldrei komist í stefnumótunarvinnu um hlutverk lífeyrisssjóðanna:
„Okkur sem höfum aðrar skoðanir eða hugmyndir, er haldið utan við alla vinnu um stefnumótun. Þannig vinnur verkalýðshreyfingin. Hún hlustar ekki. Þetta er vandamálið. Ef Gylfi Arnbjörnsson hefur meirihlutastuðning félagsmanna ASÍ, sem eru 115.000 en ekki einhverrar þröngrar klíku, þá er ég tilbúinn að stíga til hliðar. Þetta snýst ekki um mig sem persónu. Þetta snýst um að breyta þessu kerfi og við breytum þessu ekki ef við erum með forystu sem hlustar ekki.“