Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra segir taumlaus vöxtur ferðaþjónustu hér á landi sé ekki eftirsóknarvert og efast hann um að hækkun á virðisaukaskatti í greininni muni setja hana á hliðina.
Á Fésbókarsíðu sinni birtir Þorsteinn línurit yfir verðþróun á gistingu frá árinu 2010 sem hefur tvöfaldast á 7 árum:
Í stuttu máli hefur verðið liðlega tvöfaldast á sama tíma og almennt verðlag hefur hækkað um 23%. Á sama tíma hefur nýtingarhlutfall gistirýma aukist jafnt og þétt,
segir Þorsteinn. Þegar litið sé á þessar tölur þá séu hamfara spár ekki trúverðugar, en slíkar spár komi ekki á óvart því sjaldgæft sé að atvinnugreinar taki skattahækkunum fagnandi. Segir Þorsteinn tilgang skattahækkananna tvíþættann:
„Í fyrsta lagi að hemja þann stjórnlausa vöxt sem verið hefur í ferðaþjónustu á undanförnum misserum, Í öðru lagi að lækka almenna þrep virðisaukaskattsins sem þýðir að allur almenningur mun borga aðeins lægri virðisauka en ferðamenn aðeins hærri. Þannig nýtur þá almenningur þess uppgangs sem verið hefur í þessari mikilvægu atvinnugrein.“
Segir Þorsteinn að horfa verði til samfélagslegra þolmarka ekki síður en efnahagslegra áhrifa sem vöxtur ferðaþjónustunnar hefur haft undanfarin ár:
Taumlaus vöxtur ferðaþjónustu er ekki eftirsóknarverður. Í flestum greiningum sem unnar hafa verið á vegum greinarinnar sjálfrar hefur raunar ítrekað verið varað við áherslu á mikla fjölgun ferðamanna. Mikilvægara sé að horfa til aðgangsstýringar og virðisauka.