Hreppsnefnd Súðavíkur vildi ekki úthluta útgerð Finnbjarnar ÍS 68 auknum byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári. Fyrirtækið Lífsbjörg ehf sem á og rekur bátinn áformaði að setja upp fiskvinnslu í Súðavík og voru að sögn Halldórs Magnússonar, útgerðarmanns aðilar sem hefðu lagt fyrirtækinu lið við þá uppbyggingu. Finnbjörn ÍS 68 veiddi um 1200 tonn á fiskveiðiárinu, einkum á snurvoð. Þar af nærri 900 tonn af þorski. Gert var út á leigukvóta og var afkoman engu að síður góð á árinu. Finnbjörn ÍS 68 fékk aðeins 2.650 tonn í byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári og var hann ekki nýttur. Á þessu fiskveiðiári fær Finnbjörn ÍS 68 hlut úr 5% af byggðakvóta Súðavíkurhrepps og er það skráð vera 10.550 kg.
Atvinnuvegaráðuneytið auglýsti reglur um byggðakvóta fyrir Súðavík fiskveiðiárið 2016/17 ekki fyrr en 29. mars síðastliðinn. Þar er 15% byggðakvótans úthlutað til frístundaveiðibáta og 80% til báta sem hafa landað a.m.k. helmingi afla síns 2015/16 í Súðavík.Eru það einkum strandveiðibátar sem fá þann byggðakvóta. Byggðakvótinn er 166 tonn og við bætast 46 tonn sem ekki veiddust á síðasta fiskveiðiári.
Hreppsnefnd Súðavíkur vildi úthluta 30% byggðakvótans til fyrirtækis á sæbjúguveiðum. Var það rökstutt með því að ný störf myndu verða til í þorpinu með tilkomu þeirrar útgerðar. Því var arðlega mótmælt af Lífsbjörgu ehf og segir í bréfi þess til ráðuneytisins að brotið sé á félaginu og jafnræðis ekki gætt og komi til þess að ráðuneytið fallist á þetta fyrirkomulag verði það skoðað að fyrirtækið leiti réttar síns fyrir dómstólum. Bent er á að þessi áform standist ekki ákvæði laga og reglna um byggðakvóta.
Niðurstaðan varð að ráðuneytið féllst ekki á málaleitan hreppsnefndar um byggðakvóta til sæbjúguveiða. Halldór Magnússon sagði aðspurður að líklegt væri að áform Lífsbjargar ehf um auknaútgerð og fiskvinnslu í Súðavík yrðu lögð til hliðar. Fyrirtækið gengi vel eins og er og er verið að stækka bátinn og gera hann betur í stakk búinn til snurvoðaveiða.