fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Eyjan

Ráðuneytið setur áherslu á ferðaþjónustuna

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 23. febrúar 2017 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sett verður á fót skrifstofa innan atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem mun eingögnu sjá um málefni ferðaþjónustunnar. Er þetta gert í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla og auka vægi ferðaþjónustunnar í stjórnsýslunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.
Sigrún Brynja Einarsdóttir verður skrifstofustjóri ferðamála, en þar koma fimm manns til að starfa fyrst um sinn en reiknað er með að þeim fjölgi.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Fyrst um sinn verða fimm starfsmenn á hinni nýju skrifstofu ferðamála en reiknað er með að á næstu misserum gæti þeim fjölgað um einn til tvo til að styrkja starfið enn. Sigrún Brynja Einarsdóttir verður skrifstofustjóri.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir tækifærin í ferðaþjónustu mikil, en ekkert lát virðist vera á fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands:

Frá árinu 2010 hefur fjöldi erlendra ferðamanna ríflega fjórfaldast og ferðaþjónustan er nú ein allra mikilvægasta stoðin undir íslensku efnahagslífi. Tækifæri í íslenskri ferðaþjónustu eru mikil en hröðum vexti fylgja stórar áskoranir. Hlutverk stjórnvalda er að treysta stefnumótun, regluverk og uppbyggingu innviða svo ferðaþjónustan geti haldið áfram að blómstra í sátt við umhverfi, náttúru og samfélag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?