fbpx
Miðvikudagur 23.júlí 2025
Eyjan

Svanhildur Konráðsdóttir ráðin forstjóri Hörpu

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 22. febrúar 2017 11:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, hefur verið ráðin forstjóri Hörpu og tekur hún við starfinu þann 1. maí næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hörpu.

Svanhildur Konráðsdóttir hefur yfir tuttugu ára farsæla reynslu af stjórnunarstörfum á vettvangi menningar, lista og ferðamála. Síðastliðin ár hefur hún starfað sem sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, en sviðið ber ábyrgð á allri aðkomu borgarinnar að menningu, listum og ferðamálum, þ.m.t. rekstri menningarstofnana borgarinnar auk Höfuðborgarstofu.  Svanhildur leiddi m.a. stofnun Höfuðborgarstofu og síðar Menningar- og ferðamálasviðs, hún átti frumkvæði að stofnun Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík og hefur jafnframt gegnt margvíslegum öðrum trúnaðarstörfum á vettvangi menningar og ferðamála.

Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.

Svanhildur hefur allt frá árinu 2004 komið að undirbúningi tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík, fyrst sem fulltrúi Reykjavíkurborgar í Austurhöfn ehf, og síðar í félögum sem sáu um byggingu og undirbúning rekstrar Hörpu.  Frá árinu 2012 hefur Svanhildur setið í stjórn Hörpu ohf. Starf forstjóra Hörpu var auglýst laust til umsóknar 7. janúar síðastliðinn í kjölfar þess að Halldór Guðmundsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra frá 2012, sagði upp störfum og tók að sér verkefni erlendis. Svanhildur sagði sig frá öllu því sem sneri að ráðningu nýs forstjóra áður en starfið varð auglýst. Capacent var falin umsjón ráðningarferlisins og sá Auður Bjarnadóttir ráðgjafi um skipulagningu og framkvæmd þess. Alls bárust 38 umsóknir um starfið.

Það var samdóma álit ráðgjafa og stjórnar að Svanhildur hefði yfirburða þekkingu og reynslu sem myndi nýtast vel í starfi forstjóra Hörpu og að hún uppfyllti best umsækjenda skilyrði auglýsingarinnar.

,,Hjartað hefur lengi slegið fyrir Hörpu og ég er svo lánsöm að hafa tengst verkefninu nánast frá upphafi,“

segir Svanhildur.

Harpa hefur markað vatnaskil í menningarlífi og ferðaþjónustu á Íslandi og árangurinn til þessa er um margt afar góður enda býr húsið að einstaklega góðu starfsfólki og er heimili lykilstofnana í íslensku tónlistarlífi. Húsið er þjóðarinnar – ótrúlega fjölsótt og fullt af lífi, glæsilegt auðkennismerki Reykjavíkur og segull sem vekur athygli víða um heim. Ég þekki nokkuð vel þau viðfangsefni sem snerta Hörpu og þar með einnig þær áskoranir sem við hefur verið að etja í rekstrinum. Þeim þarf að mæta af ábyrgð og festu á næstu misserum svo tryggja megi húsinu traustan og heilbrigðan rekstrargrundvöll til framtíðar. Að fá að leiða reksturinn og starfið í Hörpu er því mikil áskorun og draumaverkefni fyrir hvern þann stjórnanda sem vill vinna að samfélagslega mikilvægu og rekstrarlega krefjandi verkefni. Ég hlakka því mikið til að fá að helga mig Hörpu og er þakklát fyrir að vera treyst fyrir verkefninu.

Guðfinna S. Bjarnadóttir, formaður stjórnar sagði að algjör einhugur hafi verið í stjórn að fela Svanhildi starf forstjóra Hörpu:

 Svanhildur á að baki farsæla og langa reynslu af stjórnun í flóknu starfsumhverfi þar sem viðfangsefnin snúa að menningu, ferðaþjónustu og ráðstefnuhaldi, líkt og er í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Starf forstjóra er yfirgripsmikið og Svanhildur hefur bæði þá hæfni og þann bakgrunn sem til þarf

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kolla varar Samfylkinguna við – Megn óánægja með flokkinn í sumum hverfum borgarinnar

Kolla varar Samfylkinguna við – Megn óánægja með flokkinn í sumum hverfum borgarinnar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Furðar sig a gullfiskaminninu og hjólar í Guðrúnu- „Guðrún Hafsteins peddlar einhverju nöttara samsærisbulli“

Furðar sig a gullfiskaminninu og hjólar í Guðrúnu- „Guðrún Hafsteins peddlar einhverju nöttara samsærisbulli“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni – Guðrún veldur ekki verkefninu – brestur flótti á þingmenn stjórnarandstöðunnar?

Orðið á götunni – Guðrún veldur ekki verkefninu – brestur flótti á þingmenn stjórnarandstöðunnar?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?