Fréttablaðið segir frá því að ef áætlanir um aukna þorskveiði gangi eftir – þ.e. bjartsýnustu spár – þá geti þorskveiði árið 2016 numið allt að 250 þúsund tonnum. Þetta er 100 þúsund tonna aukning frá því sem verið hefur undanfarin ár.
Þarna eru gríðarleg verðmæti í húfi. Það má nánast segja að þeir sem véla með þessa auðlind hafi ekki bara aðgang að stórum hluta af auði Íslands – heldur líka að feikilegum völdum.
Og nú stendur yfir heldur ráðleysisleg umræða um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
LÍÚ-menn vita hins vegar hvað þeir vilja. Formaður samtakanna segir:
„Á sama tíma er hins vegar algjörlega óþolandi að núna þegar uppbyggingin er að takast eigi að taka stóran hluta hennar af þeim sem færðu fórnir til að byggja stofninn upp.“
En hverjir færðu fórnirnar? Það er spurning.