Kristinn Pétursson, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og útgerðarmaður, hefur fjallað mikið um bóluna sem var blásin upp í kringum sjávarútveginn. Kristinn skrifar um meinta hagræðingu í sjávarútvegnum á vef sinn í morgun:
— — —
Dæmi:
- Brask með kvóta milli byggðarlaga veldur óöryggi og óstöðugleika, – enginn getur treyst því hvar kvótinn verður á morgun.
- Brask með kvóta – kynti upp falskar væntingar.
- Verðgildi aflaheimilda var því bóla –
- Bólan var seld – og VEÐSETT… svipað og bólurnar í USA fyrir kreppuna miklu 1929
- Fé fengið fyrir seldar aflaheimildir (innistæðulaus seðlaprentun) spennti upp falskt verð á hlutabréfum og fasteignum
- Kvótinn var og er bóla (falskar væntingar) – seld bóla leiddi af sér hlutabréfabólur og fasteignabólur…
- Svo hrundu allar bólurnar ( eins og í kreppunni í USA 1929) og – allir töpuðu.
- Eftir stendur – hálf gjaldþrota Íslenska þjóðin árið 2011.
Ranghugmyndir
Hrikalegar ranghugmyndir eru um einhverja „hagræðingu“ af allri þessari ofstjórn.
Eina „hagræðingin“ sem stenst gagnrýna skoðun er að þeir högnuðust sem seldu sig út úr greininni
Gallinn er bara sá – að bankarnir plötuðu flesta sem seldu – til að kaupa aðrar bólur – og þessi eina „hagræðing“ tapaðist því líka – að stórum hluta – þó sem betur fer einhverjir hafi gætt sín – en þeir eru of fáir.
Hér eru dæmi um krónískar ranghugmyndir:
- Við erum að veiða 32% af 500 þúsund tonna þorskafla? Ef þetta hefði tekist væri aflinn 4-500 þúsund tonn!!!
- Fiskiskipaflotinn er úreltur – meðalaldur yfir 25 ár…. ef þetta væri frábær stjórnun – væri meðalaldur fiskiskipaflotans 5-10 ár….
- Sjávarútvegur skuldar því miður meira en hann getur greitt… – ef þetta hefði tekist vel væru skuldirnar litlar.
- Sjávarbyggðir eru margar í upplausn fjárhagslega, félagslega og menningarlega, eftir þá ÚTREIÐ sem kvótakerfið olli!
- Skuldir sjávarútvegs eru það háar – að greinin getur ekki skilað þjóðinni nema litlum (jafnvel engum) gjaldeyri nettó næstu áratugi – nema AUKA fiskveiðar umtalsvert – og/eða lækka skuldir sjávarútvegs umtalsvert.