Þetta eru merkilegar upplýsingar sem koma fram í fyrstu grein Eyjunnar í úttekt á Landsbankanum, í þetta sinn samskipti Straums og Landsbankans á tímanum þegar bankakerfið var að hynja.
Á sama tíma segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra það sem allir vita: „Við vorum rænd.“
En lögmaðurinn Gestur Jónsson telur að þessi ummæli séu svo óvanaleg að hægt sé að fara með þau til mannréttindadómstóls Evrópu og þá væntanlega til að ógilda alla dóma sem kunna að falla gegn fjárglæframönnum á Íslandi.
Svo eru það Jóhanna Sigurðardóttir og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari til skamms tíma, sem eru að bítast. Jóhanna sagði á sínum tíma að Valtýr væri óhæfur til að fjalla um efnahagshrunið, þar tók hún undir með Evu Joly, og þetta varð niðurstaðan. Valtýr kom ekki nálægt málum sem tengdust hruninu. Það gat ekki öðruvísi verið – sonur Valtýs var einn af lykilmönnunum í útrásinni.
Nú er Valtýr laus úr embættinu og runnin upp stund hefndarinnar, hann hjólar í Jóhönnu og Evu Joly, og segir meðal annars að Jóhanna hafi ærst af fögnuði þegar bankamenn hafi verið hnepptir í gæsluvarðhald.
Og það er greinilegt að saksóknarinn gamli hefur áhyggjur af því hvernig farið verður með hvítflibbabrotamenn Íslands.