Paul Krugman verður í gestur í Silfri Egils á sunnudag. Krugman er ekki einasta Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og prófessor við Princeton-háskóla, heldur er hann líka einn áhrifamesti álitsgjafi í heimi. Pistlar hans í New York Times eru lesnir út um víða veröld og sömuleiðis feikivinsælt blogg hans.
Í viðtalinu ræðum við stöðu Íslands sem Krugman hefur nokkuð fjallað um, vandann á evrusvæðinu, ofvöxtinn í fjármálakerfinu og stjórnmál í Bandaríkjunum – þar á meðal Occupy-hreyfinguna svonefndu.