fbpx
Sunnudagur 14.september 2025
Eyjan

Þorsteinn Pálsson: Rétt að kalla saman ríkisráð vegna framgöngu Ólafs Ragnars

Egill Helgason
Laugardaginn 10. september 2011 09:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ljóst að ríkisstjórnin er logandi hrædd við Ólaf Ragnar Grímsson. Jóhanna Sigurðardóttir segist ætla að ræða við hann.

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, gerir grein fyrir því í Fréttablaðinu hvernig ríkisstjórnin gæti tekið stjórnskipunarlega á framgöngu forsetans – ef henni finnst hann hafa gengið of langt. Hann telur að ríkisstjórnin geti kallað saman fund í ríkisráði – þar sem sitja ráðherrar og forsetinn – bókað þar ágreining við orð forsetans og miðlað honum áfram til þjóða sem kunna að eiga hlut að máli.

„Eftir stjórnarskránni fara forseti og Alþingi sameiginlega með löggjafarvaldið og forsetinn fer með framkvæmdarvaldið ásamt öðrum stjórnvöldum. Þetta þýðir að orð forseta í fjölmiðlum heima jafnt sem erlendis eru að forminu til í nafni Alþingis og ríkisstjórnarinnar. En með því að forsetinn er jafnframt ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum ber ríkisstjórnin ábyrgð á athöfnum hans og eftir atvikum orðum.

Síðasti boðskapur forsetans var tvenns konar: Annars vegar vék hann að stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Þar kom skýrt fram að æðsti handhafi framkvæmdarvaldsins í landinu að formi til lítur svo á að þjóðir Evrópu hafi snúið fallbyssum sínum að Íslandi þegar verst stóð á. Hinir raunverulegu vinir Íslendinga séu Indverjar og Kínverjar. Sjálfur sagðist forsetinn hafa tryggt mikilvægt gjaldmiðlaskiptalán frá Kínverjum. Allir vita að það voru fyrst og fremst Norðurlandaþjóðirnar og Pólverjar, þar af fjórar Evrópusambandsþjóðir, sem veittu Íslandi fjárhagsaðstoð ásamt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þegar Ísland var í mestri þröng.

Hins vegar vék forsetinn að ríkisstjórninni sem ber ábyrgð á athöfnum hans og hann situr í forsæti fyrir á fundum ríkisráðs. Ofsagt er að hann hafi sakað hana um landráð en hann néri henni um nasir alvarlegum embættisafglöpum vegna Icesave-laganna.

Menn geta deilt um hvort forsetinn hafði lög að mæla eða ekki. En það á ekkert skylt við alvöru stjórnskipun að þjóðhöfðinginn geti átölulaust gengið með þessum hætti gegn þeim hluta framkvæmdarvaldsins sem ber ábyrgð á gerðum hans. Það er hringavitleysa. Íslendingar skaðast á að búa við slíkt skipulag. „

Og Þorsteinn lýkur grein sinni með svofelldum orðum:

„Jón Baldvin Hannibalsson hefur réttilega bent á að ríkisstjórnin verður að bregðast við. Ella eru ummælin gagnvart öðrum þjóðum í hennar nafni. Hún telst líka hafa viðurkennt að hafa brugðist skyldum sínum ef hún andmælir ekki formlega. En hvað getur ríkisstjórnin gert?

Ríkisráð er sameiginlegur vettvangur æðstu handhafa framkvæmdarvaldsins. Tilskipun um starfsreglur ríkisráðs gerir ráð fyrir að þar séu bókuð ágreiningsálit ef tilefni er til.

Í hvert sinn sem forseti Íslands gefur yfirlýsingar af því tagi sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni ber forsætisráðherra að kalla saman fund í ríkisráði. Þar á hann eða þeir ráðherrar aðrir sem hlut kunna að eiga að máli að bóka ágreiningsálit sem leiðréttir ummæli forsetans og skýrir afstöðu ríkisstjórnarinnar. Slíka bókun á síðan að birta til þess að eyða tvímælum um hver er afstaða þess hluta framkvæmdarvaldsins sem ber stjórnskipulega ábyrgð. Utanríkisráðherra á síðan að afhenda þeim þjóðum sem hlut kunna að eiga að máli bókun ríkisráðs um rétta afstöðu stjórnvalda.

Málfrelsi forsetans má ekki hefta. En noti hann það með þeim hætti sem hann hefur gert eru viðbrögð af þessu tagi nauðsynleg ef stjórnskipunin á að standa og þjóðin að halda virðingu sinni í samfélagi þjóðanna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigurður Gylfi skrifar: Háskólinn og Hótel Saga sáluga – Svar við rangfærslum DV

Sigurður Gylfi skrifar: Háskólinn og Hótel Saga sáluga – Svar við rangfærslum DV
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar skrifar: Tugir milljarða til Háskóla Íslands en aðeins örfáir fatlaðir fá inngöngu

Sigurður Hólmar skrifar: Tugir milljarða til Háskóla Íslands en aðeins örfáir fatlaðir fá inngöngu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ýmsa langar að leiða lista Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir vonda áru

Orðið á götunni: Ýmsa langar að leiða lista Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir vonda áru
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Binni í Vinnslustöðinni spinnur fantasíu

Orðið á götunni: Binni í Vinnslustöðinni spinnur fantasíu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði