Líklega hefur sitjandi forseti á Íslandi aldrei fengið jafn þunga ádrepu og frá Jóni Baldvini Hannibalssyni í Fréttablaðinu í morgun.
Jón Baldvin skrifar meðal annars:
„Ólafur Ragnar Grímsson stærir sig nú af því, að hann hafi alltaf vitað, að þrotabú LB ætti fyrir forgangskröfum (Icesave). Hann hafi m.ö.o. vitað, að skuldir óreiðumanna (eigenda LB) myndu aldrei lenda á almenningi. Hvorugt er að vísu rétt. En trúi hann þessu sjálfur vaknar sú spurning, hvers vegna hann hafi vísað máli, sem hann vissi allan tímann að væri ekki um neitt, í þjóðaratkvæðagreiðslu. Til hvers?
Er nokkur önnur skýring en sú, að hann vildi endurreisa gengisfelldan orðstír sinn? Eftir hrun varð ekki framhjá því litið, að forsetinn hafði verið fremstur í flokki að hvetja óreiðumenn útrásarinnar til dáða sem veislustjóri þeirra og viðskiptasmyrill. Skrumræðan um viðskiptasnilli skuldakónganna var sérgrein hans.
Sem kunnugt er ber forsetinn enga ábyrgð á stjórnarathöfnum, skv. gildandi stjórnarskrá. Honum var því útlátalaust að vísa Icesave-samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar með birtist hann þjóðinni í nýju ljósi. Honum tókst að slá sjálfan sig til riddara sem vörslumann almannahagsmuna. Veislustjóri útrásarinnar breyttist eins og hendi væri veifað í hugrakkan Hróa hött. Þetta var hókus-pókus, allt fyrir ekkert. „Tær snilld“, eins og annar maður komst að orði af svipuðu tilefni.
En forsetinn lætur ekki þar við sitja. Hann brigslar ríkisstjórninni um landráð, hvorki meira né minna. Með því að semja um Icesave – beygja sig fyrir fáránlegum kröfum og ofbeldi Breta og Hollendinga, eins og hann kallar það – hafi ríkisstjórnin brugðist þjóðarhagsmunum. Ísland er eina ríkið í heiminum, svo mér sé kunnugt um, þar sem forseti ríkisins getur brigslað sitjandi ríkisstjórn um landráð, án þess að það gerist nokkuð. Engin viðbrögð. Hvurnig er það – tekur enginn mark á forsetanum?“
Og hann heldur áfram:
„Það er ekki í lagi, að forseti sem enga ábyrgð ber á stjórnarathöfnum, brigsli þeim ráðherrum, sem axla alla ábyrgðina, um landráð – án þess að það kalli á nokkur viðbrögð. Íslendingar eiga að vísu að vita um ábyrgðarleysi forsetans og geta þess vegna látið eins og orð hans séu ábyrgðarlaust blaður. Öðru máli gegnir um útlendinga. Þeir vita margir hverjir ekki betur en, að forsetinn sé æðsti valdamaður þjóðarinnar og að hann tali f.h. íslenskra stjórnvalda. Sá misskilningur getur reynst þjóðinni dýr, þegar milliríkjasamningar, sem varða brýnustu þjóðarhagsmuni, eru í húfi. Lítt dulin andúð forsetans á Evrópusambandinu og flestu sem því viðkemur, er t.d. þegar orðið milliríkjavandamál. Það fer t.d. ekki framhjá neinum, þegar forseti landsins brigslar Norðurlandaþjóðum og Pólverjum – sem redduðu okkur eftir gjaldþrot seðlabankans – um fjandskap. Þvílík ósvífni.
Ríkisstjórn Íslands getur ekki látið svikabrigsl forsetans eins og vind um eyru þjóta. Ef forsetinn sér ekki sjálfur sóma sinn í að gæta tungu sinnar, geta ábyrgir stjórnmálaleiðtogar – eins og ráðherrar utanríkis- og ríkisfjármála – ekki lengur leyft sér að láta hjá líða að svara fullum hálsi – þegar forsetinn fer yfir strikið. Þeim er skylt að taka af tvímæli um, hverjir beri ábyrgð á íslenskum þjóðarhagsmunum.“