fbpx
Föstudagur 12.september 2025
Eyjan

Skeinipappír með Exista-lógóinu á

Egill Helgason
Miðvikudaginn 6. júlí 2011 16:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bloggarinn Agnar Kristján Þorsteinsson rifjar upp samskipti sín við Exista og segir meðal annars:

„Eitt orð fær mig alltaf til að gnísta tönnum þegar á það er minnst í umræðunni.

Það er orðið Exista.

Ástæðan er fyrri reynsla af því þegar fyrirtækið sölsaði undir sig þessi litlu hlutabréf sem ég átti í Símanum og það gegn vilja mínum með barbabrellum sem ég lýsti í grein sumarið 2008(finnst m.a. hér hjá Agli Helga), grunlaus um hvert stefndi en fannst viðskiptasiðferðið vægast sagt non-Existant hjá stjórnendum fyrirtækisins. Greininni var svo svarað strax daginn eftir í Morgunblaðinu af yfirmanni samskiptasviðs Exista í þeim dúr að maður væri bara einhver fýlupúki fyrir að vera ósáttur enda væri Exista æðislegt fyrirtæki.

Exista hafði ekki einu sinni efni á því að yfirtaka Símann þá líkt og kom í ljós eftir Hrun heldur var farið út í það að gefa út hlutabréf í sjálfu sér fyrir uppkaupunum, nokkuð sem við grufl í fyrra, virtist hafa verið meginregla hjá fyrirtækinu þegar kom að kaupum á einhverju: gefin út hlutabréf og lítið sem ekkert fé skipti um hendur, bara verðlaus skeinipappír með Exista-lógóinu á.

Á sama tíma stóð fyrirtækið í gegndarlausum lántökum frá Kaupþingi og stöðutöku gegn krónunni líkt og margoft hefur komið fram í fjölmiðlum sem og skýrslu RNA. Fyrirtækið virðist hafa í reynd verið tæknilega gjaldþrota og það fyrir 2008, en haldið á floti meðan það sogaði til sín lánsfé og stóð svo í svona barbabrellum og blekkingaleikjum um stöðu þess.

Fyrir utan að maður spyr sjálfan sig um hvað ætli hafi orðið um þessa milljarða sem hurfu inn í fyrirtækið en fóru ekki í eignakaup eða annað þá er ýmislegt sem manni finnst ósvarað með Exista-brellur á árinu 2008 þegar kemur að Símanum.

Það fyrsta er hversvegna fyrirtækinu var leyft að fara í þessa sölu og uppkaup í trássi við samninginn um einkavæðinguna þar sem ákvæði var um að Síminn skyldi seldur á hlutabréfamarkaði í dreifða eignaraaðild og ekkert gera þegar Exista  svo kipti fyrirtækinu út af markaði í framhaldi til að yfirtaka það með hlutabréfaaukningu í sjálfu sér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigurður Gylfi skrifar: Háskólinn og Hótel Saga sáluga – Svar við rangfærslum DV

Sigurður Gylfi skrifar: Háskólinn og Hótel Saga sáluga – Svar við rangfærslum DV
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Binni í Vinnslustöðinni spinnur fantasíu

Orðið á götunni: Binni í Vinnslustöðinni spinnur fantasíu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði