fbpx
Fimmtudagur 11.september 2025
Eyjan

Hrunverji á hálum ís

Egill Helgason
Fimmtudaginn 23. júní 2011 00:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lýður Guðmundsson var stjórnarformaður Exista. Það félag ryksugaði upp fé úr lífeyrissjóðum og kom því til leiðar að meirihlutinn af sparisjóðakerfinu íslenska hrundi. Fyrrverandi viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, komst svo að orði að eignarhaldsfélög af þessu tagi hefðu verið meinsemd á Íslandi. Fleira mætti telja til um þetta dæmalausa félag, til dæmis hefur ekki enn verið nógsamlega rannsakað hvernig það stóð fyrir þvi að gera aðför að íslensku krónunni.

Um það skrifaði Magnús Halldórsson blaðamaður í mikið lesinni grein sem birtist um daginn:

„Varðandi gjaldeyrismálin fyrir hrun, þá finnst mér upplýsingar úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis bera til baka hjalið um að fall krónunnar fram eftir öllu ári 2008 hafi verið rökrétt þróun sem byggði á vantrausti skilvirks markaðar á gjaldmiðlinum. Stærstu eigendur Kaupþings, almenningshlutafélagið Exista og Kjalar, félag Ólafs Ólafssonar, ásamt félögum eru tengdust Baugi heitnum, gerðu gjaldmiðlaskiptasamninga við Kaupþing þegar halla tók undan fæti, sem fela í sér stórfellt tap fyrir bankann. Það hefur komið fram í dómsmálum vegna deilu um uppgjör á þessum samningum.

Í skýrslunni stendur þetta m.a.:

„Það vakti athygli rannsóknarnefndarinnar að á því tæpa tveggja ára tímabili sem hér var til skoðunar var Kaupþing stór nettó kaupandi gjaldeyris á millibankamarkaði á meðan Landsbanki Íslands veitti miklu magni gjaldeyris út á markaðinn. Eins og fram kemur í kaflanum var Kaupþing ekki eingöngu að kaupa fyrir eigin reikning heldur einnig í miklum mæli fyrir hönd stærstu viðskiptavina sinna.

Frá því í nóvember 2007 og fram í janúar 2008 keyptu fimm innlend fyrirtæki, það er Exista, Kjalar, Baugur og tvö félög tengd Baugi, 1.392 milljónir evra í framvirkum samningum og stundarviðskiptum við íslensku bankana. Meirihluti þess gjaldeyris var keyptur af Kaupþingi. Þetta vekur óneitanlega athygli sérstaklega í ljósi þess að viðskiptin voru mjög umfangsmikil miðað við fyrri viðskipti flestra þessara fyrirtækja.“

Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Seðlabanka Íslands, lýsti því hvernig þetta birtist starfsfólki í seðlabankanum þegar hann gaf skýrslu hjá rannsóknarnefndinni.

„Þeir [Kaupþingsmenn] ryksuguðu gjaldeyrismarkaðinn og svo þegar þeir eru búnir að því þá hætta þeir að kvóta inn á swap-markaðinn sem gerir það að verkum að í mars 2008 bara hrynur krónan og við stóðum náttúrulega algjörlega ráðþrota í málinu því að þegar þetta gerist fara CDS-in á bankann upp og það eru komnar alls konar áhyggjur af þeim þannig að erlendir aðilar sem eiga krónur þeir bara fara í panik að selja.“

Rannsóknarnefndin sá ástæðu til þess að vísa þessu til embættis sérstaks saksóknara, enda telur hún að krónan hafi markvisst verið veikt til þess að búa til gróða fyrir stærstu eigendur Kaupþings. Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson, þá bankastjórar Seðlabanka Íslands, tilkynntu FME um grunsemdir sínar með bréfi en FME sá ekkert athugavert við þetta. Þeir grunuðu Exista um að vera að búa til tugmilljarða gengishagnað til þess að halda félaginu á lífi, og fegra mynd Kaupþings um leið. Í bréfi þeirra, sem sent var á vormánuðum 2008, stendur orðrétt: „Séu aðilar, sem jafnframt eru í bankastarfsemi, vísvitandi að stuðla að því að grafa undan gjaldmiðlinum, er allt þjóðfélagið undir í því veðmáli. Slík hegðun getur í versta falli leitt til þjóðargjaldþrots. Af þeim sökum er rétt að kanna málið til hlítar jafnvel þótt það byggi að hluta á tilgátum og upplýsingum sem ekki er búið að sannreyna.“

Þó nær ómögulegt sé að sanna þetta sem glæpi, ef ekkert finnst um samkomulag á milli bankans og stærstu eiganda hans er þessum viðskiptum tengist, þá liggur fyrir að þolendur þessa háttalags eru allir Íslendingar. „Sjokkið“ sem kemur á krónuna eftir á, þegar bankarnir hrynja, er ekki síst tilkomið vegna þess að það var búið rústa gjaldeyrismarkaðnum fyrir fram.
Stjórnmálamenn finnst mér aldrei hafa skilið þungann í þessu máli. Fólk úr atvinnulífinu, hjá Viðskiptaráði og Samtökum atvinnulífsins, hefur talað um að krónan sé ónýt og að hún hafi átt þátt í því að allt hrundi. Það má vel vera og er að einhverju leyti rétt. En allra alvarlegustu eftirköst hrunsins, háar skuldir heimila og fyrirtækja, má rekja til þess að grafið var undan gjaldeyrismarkaðnum með óeðlilegum viðskiptaháttum. Það var ekki bara um að ræða vantraust á krónunni heldur kerfisbundna atlögu að henni, sem fólk sem sat fyrir framan skjáborðin í seðlabankanum horfði á, „live“, og stjórnendur bankans töldu geta endað með þjóðargjaldþroti.“

Lýður skrifaði grein í Fréttablaðið í fyrradag. Þar kvartaði hann undan því að hann og aðrir hrunverjar sættu rannsokn hjá sérstökum saksóknara. Lýður sagði meðal annars að enginn hafi verið sóttur til saka vegna hrunsins í Bandaríkjunum.

Það er reyndar langt í frá að vera rétt. Lýður hefur kannski ekki lesið rétta fjölmiðla, en í reynd er allt logandi í yfirvofandi málaferlum vegna hrunsins í Bandaríkjunum. Þar er bæði um að ræða einkamál og mál sem eru í höndum saksóknara. Ennþá standa yfir rannsóknir á bæði AIG og Lehman Brothers. Sum þessara mála beinast að stjórnum fyrirtækjanna, önnur að samstarfsaðilum þeirra, til að mynda endurskoðendum.

Hér má sjá tvö dæmi um slík mál sem eru fundin með snöggri leit á internetinu:

http://www.nytimes.com/2011/05/05/business/05aig.html
http://www.zerohedge.com/article/andrew-cuomo-file-fraud-charges-against-ernst-young-lehman-repo-105-involvement

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin er að moka flórinn eftir sjö ára óstjórn fyrri ríkisstjórnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Það skiptir máli hverjir stjórna – berin eru súr, sagði Mikki refur

Orðið á götunni: Það skiptir máli hverjir stjórna – berin eru súr, sagði Mikki refur
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Algengir stjórnunarhættir

Óttar Guðmundsson skrifar: Algengir stjórnunarhættir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurður Hólmar skrifar: Tugir milljarða til Háskóla Íslands en aðeins örfáir fatlaðir fá inngöngu

Sigurður Hólmar skrifar: Tugir milljarða til Háskóla Íslands en aðeins örfáir fatlaðir fá inngöngu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Rétturinn til fundafriðar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Rétturinn til fundafriðar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“