Lesandi síðunar sendi þetta bréf.
— — —
Gæti ekki verið meira sammála þér:
http://silfuregils.eyjan.is/2011/06/07/varla-stjornviska-2/
Og það eru skrýtnir hlutir að gerast í íslensku samfélagi.
Fólk sem sat í þingmeirihluta og ríkisstjórn sér nú skyndilega allt til foráttu því að Landsdómi sé beitt. Jafnvel þó það sé einfaldlega gert í samræmi við þau ákvæði stjórnarskrárinnar og laga um Landsdóm, sem voru í fullu gildi allan þann tíma sem þetta sama fólk sat a þingi og í rikisstjórn. Á þeim tíma sá það aldrei ástæðu til að taka þau akvæði til skoðunar og breyta þeim. Enda leit það líklega svo á að önnur öfl myndu aldrei komast til valda á Íslandi og að elítan gæti áfram skammtað sér og sínum án afskipta annarra.
Það er líka skrítið að sjá ákveðna klíku nú halda því fram að þau Steingrímur og Jóhanna hafi gefið kröfuhöfum bankanna sérstakt skotleyfi á almenning (http://www.pressan.is/pressupennar/LesaOlafArnarson/6-ara-fangelsi-fyrir-steingrim-j.-og-johonnu). Skv. íslensku stjórnarskránni er eignarétturinn friðhelgur. Sú vernd nær líka til allra fjármunakrafna. Ef íslenska ríkið eða ríkisstjórnin hefði með einhverjum hætti bremsað aðgang kröfuhafa að því að innheimta kröfur sínar, hefði ríkið einfaldlega lent í því að verða skaðabótaskylt gagnvart kröfuhöfunum. Og allir almenningur þurft að blæða, en ekki bara þeir sem lánin tóku.
Áróðurinn og blekkingarleikur þeirra sem sátu að kjötkötlunum í aðdraganda hrunsins er að verða þyngri með hverri mínútunni sem líður. Og bráðum svo þungur að almenningur fer að trúa þessari vitleysu allri.