Það er sagt að frumvarpspakkinn um sjávarútvegsmál eigi að koma í þingið á næstu dögum. Það er ekki vonum seinna, málið átti að vera löngu komið fram en dróst í ráðuneyti Jóns Bjarnasonar.
Hins vegar er þetta býsna flókið dæmi, fáir virðast vera sérlega ánægðir með boðaðar breytingar, bara misjafnlega ánægðir. Þannig að vísast eiga frumvörpin eftir að taka breytingum í meðförum þingsins.
Þing á að klárast eftir fyrstu vikuna í júní, það mun beinlínis vera búið að ráðstafa þinghúsinu vegna hátíðarhalda í tilefni af 100 ára afmæli Háskólans og 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar.
Sem reyndar virðist vera ákaflega lítil stemming fyrir.
En það er vandséð að verði hægt að klára mikið af þessu fyrir sumarfrí, enda munu margir í stjórnmálunum þrá að þetta verði látið bíða fram á haust. Margir eru mjög vígmóðir eftir átök liðinna ára.
Hins vegar er sagt að Jóhanna Sigurðardóttir geti vel hugsað sér að umræðan um kvótakerfið fari á flug. Innan stjórnarliðisins er nefnilega talið að málið geti valdið Sjálfstæðisflokknum verulegum vandræðum, því það muni blasa við að hann gangi erinda hagsmunaaðila.