fbpx
Þriðjudagur 09.september 2025
Eyjan

Hugmyndagrundvöllur útrásarinnar

Egill Helgason
Mánudaginn 16. maí 2011 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafi Ragnari Grímssyni þykir óþarfi að forsetaembættið setji sér siðareglur og það má svosem vel vera – eins og staðan er vitum við ekkert um hvernig næsti forseti hugsar sér valdsvið sitt eða hlutverk. En það var ekki hik á honum þegar hann tók saman íslensku boðorðin sem hann þróaði á tíma útrásarinnar – þessi útgáfa er úr fyrirlestri hjá Sagnfræðingafélaginu sem forsetinn hélt 10. janúar 2006. Í raun má segja að þarna sé að finna hinn eiginlega hugmyndagrundvöll útrásarinnar, það var Ólafur Ragnar sem þróaði hann öðrum fremur og einnig orðfæri hennar:

„Í fyrsta lagi vinnusemi sem ef til vill er arfur frá samfélagi þar sem allir þurftu að leggjast á árar, bæði bændur og sjósóknarar, og ekki var spurt um tímafjölda þegar lífsbjörgin var í húfi.

Í öðru lagi áhersla á árangur frekar en feril ákvarðana, að ganga beint til verks og ljúka því á skömmum tíma, spyrja hvenær frekar en hvernig og láta sér ekki vaxa í augum þótt tíminn sé naumur.

Í þriðja lagi að eiga auðvelt með að taka áhættuna, að þora þegar aðrir hika, kannski vegna þess að lífi sjómannsins fylgir jafnan hætta og útrásin er eins konar róður á ný mið. Við vitum líka að ætíð er hægt að hverfa aftur heim til Íslands ef illa fer í leiðangrinum og eiga hér hið besta líf því öryggisnetið sem velferðarsamfélagið veitir okkur tryggir öllum sama rétt til menntunar og umönnunar óháð efnahag. Athafnamenn í sumum öðrum löndum verða hins vegar oft að leggja velferð fjölskyldunnar á vogarskálar áhættunnar.

Í fjórða lagi að flækjur skrifræðisbákna hafa aldrei þvælst fyrir okkur Íslendingum; við erum vön að eiga beint við einstaklinga. Kannski hefur smæðin blessunarlega komið í veg fyrir að virkisveggir skrifræðis risu hér; við höfum einfaldlega ekki haft mannskap til að hlaða þá.

Í fimmta lagi hin ríka áhersla á að treysta hvert öðru, að orðheldni sé mikil dyggð, enda formlegir samningar oft óþarfir í litlu samfélagi. Það gerir fólki kleift að vinna saman og ná árangri hraðar en þeir sem vanist hafa skriflegri og flókinni umgjörð um samstarf áður en verkið sjálft er hafið.

Í sjötta lagi hve auðvelt er að mynda samstarfshópa sem stefna að sama marki, að skapa iðandi keðju bandamanna í ákvörðunum og ná þannig forskoti á fulltrúa hinna stóru sem bundnir eru af þunglamalegu og flóknu kerfi.

Í sjöunda lagi hinn íslenski athafnastíll þar sem stjórnandinn sjálfur er í fremstu röð, líkt og skipstjóri í brúnni sem deilir örlögum og áhættu með áhöfninni. Fyrirtækin öðlast svipmót frumkvöðlanna, persóna hans eða hennar verður ráðandi afl og slíkt stuðlar að ábyrgð og forystu í ríkara mæli en þar sem stjórnendur standa í skjóli af stærri heildum.

Í áttunda lagi arfleifðin sem ég nefndi í upphafsorðum, landnámið og tími víkinganna, sem færði okkur fyrirmyndir, hið djúpstæða viðhorf að sá sem heldur á ókunnar slóðir verðskuldi heiður, að leggja á hafið og nema lönd færi virðingu og sóma. Athafnamenn okkar tíma eru ærið oft metnir á slíkan kvarða og litið á þá sem arftaka hefðar sem á sér rætur í upphafi Íslandsbyggðar.

Í níunda lagi og einnig þar eru tengslin við forna tíma skýr, Eddukvæðin, Hávamál: „Deyr fé,/ deyja frændur,/ deyr sjálfur hið sama./ En orðstír / deyr aldregi / hveim er sér góðan getur.“ Við vitum að mannorðið er dýrmætara en flest annað og slík hugsun er vænlegra leiðarljós um ókunna vegu á heimsmarkaði en regluverk eða flókin vegakort sem aðrir hafa samið. Það dugir Íslendingum lítt til sæmdar að brjótast áfram í öðrum löndum með aðferðum sem eru vafasamar því orðstírinn kann að tapast í slíkri för.

Í tíunda lagi áherslan á sköpunargáfu; virðing sem hinn frumlegi nýtur á heimaslóð og öndvegið sem skáldin sátu forðum hafa fylgt okkur um langan veg. Orðið athafnaskáld er lýsandi dæmi um hvernig þessi hugsun hefur fengið gildi í samtímanum. Þeim sem eru skapandi í hugsun, móta nýjan texta, nýja reynslu, nýtt verkasvið, nýjan athafnavöll er skipað í virðingarsess.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Popúlismi er tæki og við erum fólk

Nína Richter skrifar: Popúlismi er tæki og við erum fólk
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Utanríkispólitík stjórnarandstöðunnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Utanríkispólitík stjórnarandstöðunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn leikur á reiðiskjálfi

Orðið á götunni: Framsókn leikur á reiðiskjálfi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Yfirburðir Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokkurinn undir tveimur prósentum

Yfirburðir Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokkurinn undir tveimur prósentum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ekki vera það sem þú ert

Sigmundur Ernir skrifar: Ekki vera það sem þú ert
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur tekinn við af Hildi

Ólafur tekinn við af Hildi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp

Vinnslustöðin lokar fiskvinnslunni Leo Seafood og segir 50 starfsmönnum upp
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Frelsi til að vera tussa

Nína Richter skrifar: Frelsi til að vera tussa