Það eru frábær tíðindi að Gyrðir Elíasson skuli fá bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Ég get ekki hugsað mér marga höfunda sem væru betur að þeim komnir.
Gyrðir er frumlegur og snjall höfundur sem hefur sína eigin sýn og sinn sérstaka tón. Það er í raun fáum gefið.
Hann tekst á við bókmenntirnar af alvöru og það er ekki alltaf auðveld glíma, veit ég.
Það er gott að lesa bækur eftir Gyði og hverfa inn í sagna- og ljóðaheim hans.
Ég vek svo athygli á viðtalinu sem var við Gyrði í síðustu Kilju, í tilefni af fimmtugsafmæli hans. Það má skoða með því að smella hérna.