Pressan skýrir frá því að Ólafur Ragnar Grímsson og Styrmir Gunnarsson séu farnir að funda á Bessastöðum.
Þetta mega teljast sögulegar sættir, því þegar Styrmir var ritstjóri Moggans fór Ólafur Ragnar óskaplega í taugarnar á honum – hann setti sig aldrei úr færi að agnúast út í forsetann.
En nú eru komnir nýir tímar og ný bandalög.
Styrmir hefur átt sér draum um samstarf milli þeirra sem eru yst til hægri og þeirra sem eru yst til vinstri – það er að sumu leyti að verða til í andstöðunni við Icesave og ESB.
Hann hefur líka verið að setja fram nýstárlegar hugmyndir um Sjálfstæðisflokkinn – í rauninni má segja að hann sé að boða að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að vera allt annar flokkur en hann hefur verið alla sögu sína. Flokkurinn hefur verið bandalag hagsmuna, þar sem atvinnurekendur hafa verið sterkastir. En Styrmir vill að flokkurinn segi ráðandi öflum og lokuðum klíkum stríð á hendur. Þetta er í raun merkileg framtíðarsýn þar sem beint lýðræði er sett á oddinn, með andstöðu við „yfirstétt“ og stórfyrirtæki og áherslu á að Íslendingar séu sjálfum sér nógir um flesta hluti – en í raun er spurning hvort þetta eigi ekki betur heima í nýrri stjórnmálahreyfingu en í Sjálfstæðisflokknum.
Þeir Ólafur og Styrmir gætu orðið þar helstu hugmyndasmiðir.