Skúli Mogensen sem er að reyna að kaupa MP banka var einn af aðalmönnunum í OZ.
OZ var aðalfyrirtækið á Íslandi á tíma dot.com-bólunnar, jú, ásamt með DeCode.
Margt fólk á Íslandi brenndi sig illa á þessum fyrirtækjum, keypti bréf í þeim á svokölluðum gráum markaði, margir töpuðu því öllu.
En sumir græddu.
Ólafur Ragnar Grímsson var álíka mikill sölumaður fyrir OZ og hann var síðar fyrir útrásina. Um tíma var OZ alltaf á vörum hans.
Nú birtist Skúli aftur og vill kaupa banka. Það er vitað að hann er gamall vinur og samstarfsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Þorteinn Már Baldvinsson í Samherja ætlaði að vera með Skúla í þessum viðskiptum, en nú er hann hættur við án þess að skýring fáist.
Síðustu afskipti Þorsteins af bankamálum voru þegar banki þar sem hann var stjórnarformaður, Glitnir, var yfirtekinn af íslenska ríkinu haustið 2008.
Traustvekjandi? Ekki beinlínis.
En það má rifja upp að í fjölmiðlum hefur lengi staðið yfir auglýsingaherferð þar sem því er haldið fram að MP sé ferlega traustur banki.